Beint í efni

Skák vin­sæl í Hofs­staða­skóla

Fréttir
18.06.2026

Metþátttaka var í skákmóti Hofsstaðaskóla sem haldið var föstudaginn 29. maí. 108 nemendur úr 1. til 7. bekk tóku þátt og var 1. og 2. bekkur fjölmennastur.

Áhugi á skák er mikill í Hofsstaðaskóla og hafa nemendur úr 4. bekk staðið sig afar vel á öðrum skákmótum. Nemendur í 1. og 2. bekk fá kennslu í peðaskák og skák í smiðjum og allir nemendur skólans hafa aðgang að taflborðum í bekkjarstofum, á göngum og í frístundaheimilinu.

Þátttakendur mótsins tefldu fimm skákir og stóðu sig mjög vel. Mjótt var á munum og oddastig voru notuð til þess að skera úr um úrslit. Verðlaunaafhending fór fram sl. föstudag. Efstu þrír í hverjum aldurshópi fengu verðlaunapening og farandbikar var veittur í annars vegar 1. til 4. bekk og hins vegar í 5.–7. bekk.

Þrír feður nemenda úr 4. bekk sáu alfarið um framkvæmd mótsins. Það voru þeir Emil, Hallgrímur og Harald sem tengjast líka TG. Hofsstaðaskóli færir þeim þakkir fyrir að gera mótið að veruleika og styðja við skákstarfið í skólanum.

Úrslit mótsins voru eftirfarandi:

1. og 2. bekkur

1. sæti með 5 vinninga Magnús Páll Magnússon 1. JES

2. sæti með 4,5 vinninga Elmar Kári Ingason 2. HHK

3. sæti með 4 vinninga Arnar Dagur Ásgeirsson 1. BBÓ

3. bekkur

1. sæti með 5 vinninga Nökkvi Birgisson 3. BSt

2. sæti með 4 vinninga Andrés Þórólfur Benediktsson 3. BSt

3. sæti með 4 vinninga Þórarinn Ottó Óttarsson 3. ÓG

4. bekkur

1. sæti með 5 vinninga Jakob Þór Emilsson 4. BS

2. sæti með 4,5 vinninga Hugi Steinn Hauksson 4. JBI

3. sæti með 4 vinninga Þorvaldur Orri Haraldsson 4. NBS

5. til 7. bekkur

1. sæti með 4 vinninga Brynjar Þór Sævarsson 7. GHS

2. sæti með 4 vinninga Róbert Magni 7.

3. sæti með 3 vinninga Dagur Freyr 7. StH