Skapandi ungmenni héldu frábæra lokahátíð
Ungmenni í Skapandi sumarstörfum hafa nú lokið starfi sínu. 13 glæsileg ungmenni störfuðu í 7 vikur við metnaðarfull verkefni sem þau kynntu öll á lokahátíð þann 20. júlí sl. í ungmennahúsinu Torginu og í Gróskusalnum á Garðatorgi.
Mjög fjölbreytt verkefni voru kynnt á lokahátíð skapandi sumarstarfs í Garðabæ. Píanóleikarinn Ásgerður Sara flutti fyrsta kaflann í píanókonsert eftir Grieg en þann 17. ágúst mun hún halda tónleika í Tónlistarskóla Garðabæjar. Tölvunarfræðineminn Davíð Einar Ingólfsson sýndi hönnun sína á goðsagnarpersónum og leiklistarnemarnir Agla Bríet Bárudóttir og Andri Fannar Sóleyjarson Sveinbjörnsson kynntu verkefni sem þau fóru með í 8 leikskóla í Garðabæ. Leiklistarnemarnir Hanna Álfheiður Gunnarsdóttir og Guðríður Jóhannsdóttir hafa unnið að stuttmynd í sumar sem sýnd verður í Bíó Paradís 13. og 14. ágúst en sýnd var stikla frá myndinni. Kynntur var spilastokkur sem tileinkaður er Garðabæ og hannaður er af Írisi Evu Ellenardóttur Magnúsdóttur og Daniela Ehmann flutti 3 lög af plötu sem hún hefur unnið að í sumar og mun í lok ágúst halda útgáfutónleika á Dillon. Þau Þórey María E. Kolbeins og Magnús Freyr Brannan fluttu lög sem þau hafa samið í sumar en þann 21. júlí héldu þau tónleika á Álftanesi. Leikfélagið Fuglabjarg flutti svo í lok hátíðar nokkur lög úr söngleikjum en þær Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og Katrín Ýr Erlingsdóttir munu ásamt fjölda listamanna standa fyrir söngleikjatónleikum þann 6. ágúst í Salnum í Kópavogi. Auk þeirra sem kynntu verkefni sín á lokahátíðiðinni mun Katla Einarsdóttir opna sýningu í Hönnunarsafni Íslands þann 29. ágúst sem fjallar um saumaklúbba.
Það verður gaman að fylgjast með þessum flottu ungu Garðbæingum á sinni skapandi braut í framtíðinni. Verkefnastjóri Skapandi sumarstarfa var Einar Örn Magnússon og honum til aðstoðar Agla Bríet Bárudóttir.
Skapandi sumarstörf í Garðabæ eru með facebook síðu þar sem sjá má stutt kynningarmyndbönd frá ungmennunum.







