Beint í efni

Skemmti­leg dag­skrá í til­efni sum­ar­dags­ins fyrsta

Fréttir
16.04.2026

Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í Garðabæ í tilefni sumardagsins fyrsta. Skátafélagið Vífill sér um dagskrána.

Dagskrá sumardagsins fyrsta í Garðabæ hefst með skrúðgöngu frá Hofsstaðaskóla klukkan 14:00. Skátar úr Vífli sjá um gönguna og blásarasveit Tónlistarskólans í Garðabæ sér um tónlistina.

Gengið verður frá Hofsstaðaskóla að Miðgarði, þar verður boðið upp á skemmtidagskrá með töframönnum, andlitsmálningu, hoppukastala, veltibíl og klifri. Klara Einars, Latibær og VÆB stíga á svið.

Árleg kaffisala Vífils verður á 2. hæð þar sem hægt verður að fá sér ýmsar kræsingar.

Sumardagurinn fyrsti (25.5 x 39 cm)