Skilaboð til kattaeigenda á varptíma fugla

Að gefnu tilefni minnum við á að skv. samþykkt um kattahald í Garðabæ er umráðamanni kattar gert að taka tillit til fuglalífs á varptíma frá 15. apríl til 31. ágúst með því að hengja bjöllu á köttinn og eftir atvikum að takmarka útiveru hans.
Á vef Fuglaverndar má finna fróðleik og ráð til kattaeigenda varðandi varptíma fugla.
Þar kemur m.a. fram að æskilegt sé að setja litríka kraga á útiketti því rannsóknir sýna að kettir með kraga drepa allt að 19 sinnum færri fugla en kettir sem eru ekki með kraga. Þá hafa kragar sem eru marglitir (regnbogalitir) gefið betri árangur en rauðir eða gulir
Fuglavernd mælir með því að kattaeigendur stýri útivistartíma katta á varptíma og haldi köttum inni á nóttunni (helst frá kl. 17 til kl. 9 næsta morgun).

Sjá einnig: Samþykkt um kattahald í Garðabæ