Skólabygging Tónlistarskóla Garðabæjar stækkar

Fyrstu skóflustungurnar að nýrri viðbyggingu við Tónlistarskólann í Garðabæ voru teknar við hátíðlegt tilefni á dögunum. Áformað er að nýja aðstaðan verði tilbúin haustið 2027.
Skólabygging Tónlistarskóla Garðabæjar mun stækka svo um munar á næstu misserum en ný viðbygging spannar 590 fermetra sem bætast þá við núverandi byggingu sem er um 1000 fermetrar.
„Það er mikil tilhlökkun í okkar hópi vegna stækkunar skólans. Viðbyggingin mun bæta aðstöðu til kennslu og samspilsæfinga til muna. Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til komandi árs þegar við tökum nýju viðbygginguna í notkun,“ segir Laufey Ólafsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar, um fyrirhugaða stækkun.
Hópur nemenda við skólann flutti tónlistaratriði fyrir viðstadda við tilefnið.

Tónlistarnám í Garðabæ er í miklum blóma en rúmlega 500 nemendur stunda nú nám við skólann. „Þetta var skemmtileg stund og veðurguðirnir voru með okkur í liði. Það hefur sýnt sig og sannað að tónlistarnám í Garðabæ er í háum gæðaflokki og við vitum að stækkunin verður kærkomin viðbót fyrir skólann,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.



