Beint í efni

Snyrti­legar lóð­ir 2023

Fréttir
01.08.2023

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Umhverfisnefnd óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2023. Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.

Umhverf­isnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og auglýsir eftir ábendingum frá bæjarbúum um:

  • Snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis
  • Snyrtilegar lóðir fyrirtækis
  • Snyrtileg opin svæði
  • Snyrtilega götu og
  • Framlag til umhverfismála

Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is fyrir 9. ágúst 2023.