Beint í efni

Söngva­vor á Garða­torgi

Fréttir
11.05.2026

Fimm ára börn í leikskólum og leikskóladeildum í Garðabæ syngja lög eftir Dr. Gunna á tónleikum sem fara fram á Garðatorgi 7, þriðjudaginn 12. maí klukkan 15:00.

Verkefnið Söngvavor verður nú í fyrsta sinn á dagskrá í Garðabæ. Fimm ára börn í leikskólum og leikskóladeildum í Garðabæ syngja lög eftir Dr. Gunna á tónleikum sem fara fram á Garðatorgi 7, þriðjudaginn 12. maí klukkan 15:00.

Með börnunum leikur hljómsveit skipuð nemendum Tónlistarskóla Garðabæjar undir stjórn Hönnuh O'Connor. Þá syngur kór barna úr 2. bekk Sjálandsskóla með til stuðnings. Kórstjóri er Ólafur Schram. Verkefnisstjóri verkefnisins er Linda Margrét Sigfúsdóttir aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar.

Leikskólarnir og leikskóladeildir Kirkjubóls, Hæðarbóls, Holtakots, Sjálandsskóla, Lundabóls, Krakkakots, Akra, Sjálands, Bæjarbóls, Urriðaholtsskóla og Barnaskólans í Garðabæ hafa frá því í janúar æft með börnunum. Fyrr í maí var svo haldin æfing í Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem kom í ljós hve frábært starf kennarar skólanna hafa unnið með börnunum. Alls eru nærri 400 börn sem koma fram á tónleikunum.

Verkefnið Söngvavor sem hefur verið starfrækt um árabil í Reykjavík en er nú í fyrsta sinn á dagskrá í Garðabæ.

Öll velkomin á Söngvavor á Garðatorgi þriðjudaginn 12. maí klukkan 15:00.

Viðburður á Facebook.