Starfsemi Þorláksskóla hafin

Samningur um Þorláksskóla, nýjan sérhæfðan grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ, hefur verið undirritaður og starfsemi skólans er farin af stað. Skólinn er sjálfstætt starfandi og rekinn af Jónsvegi ehf. í nánu samstarfi við Garðabæ.
Undirritun samningsins var ánægjulegur áfangi eftir undirbúningsvinnu undanfarinna mánaða. Skólasetning var 24. ágúst og stunda nú fimm nemendur nám við Þorláksskóla.
Markmið skólans er að skapa sérhæft og öruggt námsumhverfi fyrir einhverf börn þar sem styrkleikar, þarfir og líðan hvers nemanda eru í forgrunni. Starfið byggir á TEACCH-hugmyndafræðinni ásamt taugaþroskalegri og tengslamiðaðri nálgun. Áhersla er meðal annars lögð á skynúrvinnslu, öruggt umhverfi og traust tengsl sem undirstöðu náms og þroska.
Í vetur mun starfsemin fara fram í sérrými innan Álftanesskóla. Fyrsta starfsárið verður starfsemin byggð upp í litlum skrefum með það að markmiði að skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun skólans.
Með tilkomu skólans verður til nýr valkostur fyrir fjölskyldur einhverfra barna og mikilvæg viðbót við þá skólaþjónustu sem þegar er í boði.
