Beint í efni

Sterk af­koma Garða­bæj­ar og skulda­hlut­föll lækka

Fréttir
14.04.2026

Rekstur Garðabæjar 2025 gekk vel og  endurspeglar afkoman sterka stöðu sveitarfélagsins. Samhliða fjárfestingum, vexti og áframhaldandi uppbyggingu stendur Garðabær á sterkum grunni og skuldahlutföll lækka.

Rekstur Garðabæjar 2025 gekk vel og  endurspeglar afkoman sterka stöðu sveitarfélagsins. Þetta sýnir nýr ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2025 sem var lagður fram á fundi bæjarráðs 14. apríl 2026. Samhliða fjárfestingum, vexti og áframhaldandi uppbyggingu stendur Garðabær á sterkum grunni og skuldahlutföll lækka.

Heildarrekstrarniðurstaða Garðabæjar árið 2025 var jákvæð um 2.753 m.kr., samanborið við 1.183 m.kr. árið 2024. Rekstrartekjur námu 35.239 m.kr., sem er um 9,1% hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrargjöld námu 28.570 m.kr. Fjármagnsgjöld lækkuðu á milli ára og námu 1.905 m.kr. samanborið við 2.180 m.kr. árið 2024. Þá námu afskriftir 2.011 m.kr. og veltufé frá rekstri nam 2.389 m.kr.

Ábyrg fjármálastjórn skilar sér til íbúa

Lántaka á árinu 2025 nam 3.159 m.kr. og var 866 m.kr. lægri en gert var ráð fyrir.  Garðabær greiddi niður langtímalán og leiguskuldir að fjárhæð 2.094 m.kr. og skammtímalán lækkuðu um 919 m.kr. Hrein lántaka var því óveruleg á árinu. Skuldaviðmið lækkaði verulega á milli ára og nemur nú 86%, en var 97% árið 2024. Skuldahlutfall lækkaði sömuleiðis úr 120% árið 2024 í 110% árið 2025.

„Það hefur verið meginstef í okkar ákvarðanatöku að mikilvægt sé að eiga til að eyða. Við höfum lagt mikla áherslu á að takmarka skuldaaukningu, greiða niður lán og lækka markvisst skuldahlutfall bæjarins,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar. „Lægri skuldir og sterk fjárhagsstaða eru forsenda áframhaldandi uppbyggingar og bættrar þjónustu,“ bætir hann við.

Álögum á íbúa hefur verið stillt í hóf í samræmi við rekstur Garðabæjar og er útsvarshlutfallið með því lægsta sem þekkist meðal sveitarfélaga á Íslandi. Álagningarhlutfall fasteignagjalda hefur verið lækkað og almennar gjaldskrárhækkanir ekki farið umfram verðlag.

„Við viljum að íbúarnir finni fyrir því sjálfir þegar vel gengur,“ segir Almar.

Áframhaldandi uppbygging

Íbúum Garðabæjar fjölgaði um 608 á árinu og var íbúafjöldi við árslok 20.724. Þetta sýnir að fjölgun íbúa heldur áfram að vera stöðug, en á síðustu fjórum árum hafa 2.677 íbúar flutt í Garðabæ.

Fjárfestingar námu 5.089 m.kr. og ber þar helst að nefna byggingu 3. áfanga Urriðaholtsskóla með íþróttahúsi og sundlaug, nýja aðstöðu á 2. hæð Miðgarðs, endurbætur á skólahúsnæði og skólalóðum, nýja félagsmiðstöð fyrir eldra fólk á Álftanesi, framkvæmdir við fráveitumál á Álftanesi auk fjölda annarra smærri verkefna. Framlög til fræðslu- og uppeldismála sem hlutfall af skatttekjum hækkuðu umtalsvert og fóru úr 56,3% í 61,3% á milli ára.

„Það er ánægjulegt að sjá að íbúum Garðabæjar heldur áfram að fjölga og að samfélagið er ungt í samanburði við mörg önnur. Það er staðfesting á því að við séum á réttri leið. Á sama tíma skiptir miklu máli að fjárfestingar séu í takt við þá þróun og að tekjur af sölu byggingarréttar séu nýttar til uppbyggingar á innviðum. Við vinnum auðvitað út frá því að þjónusta og uppbygging sé áfram í fremstu röð,“ segir Almar.

Helstu lykiltölur

·       Skuldaviðmið: 86%

·       Skuldahlutfall: 110%

·       Veltufé frá rekstri: 2,389 m.kr. eða 6,8% af rekstrartekjum

·       Rekstrarniðurstaða: 2.753 m.kr. eða 7,8% af rekstrartekjum

·       Fjárfestingar: 5.089 m.kr. eða 14,4% af rekstrartekjum

·       Eiginfjárhlutfall: 45,8%

Ársreikningurinn verður nú lagður fyrir bæjarstjórn Garðabæjar til tveggja umræðna.

Hann má nálgast hér fyrir neðan.