Beint í efni

Stjarn­an á Garða­torgi

Fréttir
30.08.2026

Í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins var skemmtilegur stjörnuskúlptúr settur upp á Garðatorgi.

Stjarnan er ekki aðeins skúlptúr sem setur svip sinn á miðbæinn heldur einnig bekkur – tilvalinn staður til að tylla sér, njóta mannlífsins á torginu og taka myndir.

Stálsmiðja Óðins smíðaði verkið og starfsfólk blómabúðarinnar Luna Studio skreytti það af natni fyrir afmælishátíðina sem var haldin 29. ágúst, með m.a. trjágreinum úr bænum.

Stjarnan á Garðatorgi