Stjörnuhlaupið á laugardag
Fréttir
13.05.2024
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Nú er um að gera að reima á sig skóna og taka þátt og njóta náttúrunnar.
Stjörnuhlaupið verður haldið laugardaginn 18. maí.
Hlaupið byrjar og endar við íþróttahúsið Miðgarð.
Stjörnhlaupið er almenningshlaup sem fer fram í fallegri Heiðmörkinni á góðum göngustígum.
Allir geta tekið þátt; gengið/joggað, skokkað/hlaupið eða þotið um stígana!
Drykkir og veitingar í boði eftir hlaup.
Nánari upplýsingar og skráning er á hlaup.is