Syðra bílastæði við Vífilsstaðavatn lokað í ágúst
Tilkynningar
31.07.2026

Syðra bílastæðið við Vífilsstaðavatn verður lokað tímabundið frá 4. ágúst vegna framkvæmda.
Áætlað er að lokunin verði amk út ágúst mánuð. Lokunin er vegna framkvæmda við nýjan göngustíg frá bílastæðinu upp að vörðunni Gunnhildi í Vífilsstaðahlíð. Áfram verður hægt að leggja bílum á nyrðra bílastæðinu við vatnið.
Nýji göngustígurinn mun liggja vestan við eldri göngustíg, á mynd hér fyrir neðan má sjá nýja göngustíginn merkan með hvítri línu.
Varðan Gunnhildur var á sínum tíma hlaðin af vistfólki á Vífilsstaðaspítala og hefur verið vinsælt að ganga upp að henni þaðan sem er fallegt útsýni.
