Þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 29. ágúst
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB (Evrópusambandið), er fram á að fara laugardaginn 29. ágúst 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri.
Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 svara kjósendur einni spurningu með því að merkja X við já eða nei: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Allar almennar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna má finna á vefnum kosning.is
Public referendum 2026
The referendum will ask whether Iceland should resume accession negotiations with the European Union. The referendum will take place 29th of August 2026. The options on the ballot will be yes and no.
See info here in English
Upplýsingar á vef Garðabæjar
Hér á vef Garðabæjar má einnig finna almennar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna, þar má sjá upplýsingar um kjördeildir og götur innan hverrar kjördeildar.
Á kjördag, laugardaginn 29. ágúst, verður birt frétt á vef Garðabæjar þar sem tölur um kjörsókn í Garðabæ verða birtar yfir daginn.