Beint í efni

Tríó El­eg­ía á há­deg­is­tón­leik­um um ást­ina

Fréttir
30.09.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Næsta Tónlistarnæring í Tónlistarskóla Garðabæjar verður haldin á miðvikudaginn, 2. október. Að þessu sinni stígur Tríó Elegía á svið.

Tónlistarnæring eru hádegistónleikar í boði menningar- og safnanefndar Garðabæjar sem haldnir eru í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Á efnisskrá Tónlistarnæringar að þessu sinni eru aríur og sönglög í eigin útsetningum Tríó Elegíu eftir tónskáld á borð við Bizet, Massenet, Saint-Saëns og Lehár.

Tríó Elegía er skipað Svöfu Þórhallsdóttur sópran, Berglindi Stefánsdóttur flautuleikara og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara.

Aðalþema tónleikanna er ástin og hvernig hún birtist á fjölbreyttan hátt. Einnig munu þær Svafa, Berglind og Hrönn flytja norræn sönglög þar sem töfrar náttúrunnar og hin norræna melankólía fléttast saman í brostnum draumum og þrám.

Tónleikarnir eru 30 mínútna langir og fara fram í sal skólans að Kirkjulundi. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. Þeir hefjast klukkan 12:15

Tríó Elegía á hádegistónleikum um ástina - Garðabær