Beint í efni

Tveggja daga lok­un stígs við Arn­ar­neslæk

Tilkynningar
28.09.2026

Stígur við Arnarneslæk verður lokaður í tvo daga, mánudaginn 28. september og þriðjudaginn 29. september, vegna lokaframkvæmda við stígagerð á svæðinu. Lokunin hefst klukkan 9 á mánudagsmorgni og stendur til klukkan 18 á þriðjudag.

Gangandi og hjólandi vegfarendur eru beðnir um að fara um hjáleið sem sýnd er á meðfylgjandi korti á meðan lokunin stendur yfir.

Merkingar sem sýna hjáleiðir eru settar upp á svæðinu.

Framkvæmdir verða með eftirfarandi hætti:

· Mánudaginn 28. september: Malbik verður rifið upp og undirlag þjappað.

· Þriðjudaginn 29. september: Stígarnir verða malbikaðir.

Þegar malbikun lýkur verða nýir stígar sunnan Arnarneshæðar og við Sjávargrund tengdir saman og opnaðir fyrir umferð gangandi og hjólandi.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát í nágrenni framkvæmdasvæðisins og fylgja merkingum og leiðbeiningum um hjáleiðir.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum vegfarendum fyrir sýnda tillitssemi.