Beint í efni

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ingar Garða­bæj­ar 2026 veittar

Fréttir
02.09.2026

Umhverfisviðurkenningar Garðabæjar fyrir árið 2026 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi.

Góðakur var valin snyrtilegasta gatan, GKG fékk viðurkenningu fyrir lóð sína og eigendur fjögurra lóða íbúðarhúsnæðis við Brekkubyggð 26, Dalsbyggð 6, Kinnargötu 92A-92B og við Sjávargötu 33 fengu afhentar viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir. Búðakinn fékk í ár viðurkenningu sem skemmtilegt opið svæði í bænum og Margrét Birna Sigurbjörnsdóttir fékk viðurkenningu fyrir framlag til umhverfismála.


Meðfylgjandi eru myndir frá afhendingu viðurkenninganna ásamt hluta úr umsögnum og myndum af þeim lóðum og svæðum sem hlutu viðurkenningu.

Viðurkenningar fyrir lóðir íbúðarhúsnæðis 2026

Brekkubyggð 26

Glæsileg lóð sem er í góðu viðhaldi. Tré og runnar eru gróskumikil og þar er mikið af blómstrandi plöntum. Grasflöt í bakgarði er mjög falleg og runnar vel formklipptir. Á baklóð eru tré, runnar og glæsilegur sólpallur. Grenitré við aðkomu er áberandi fallega formklippt. Fallegur og snyrtilegur garður.

Dalsbyggð 6

Falleg lóð í góðu viðhaldi, runnar snyrtilega formklipptir og grasflatir flottar. Hellulögn í aðkomu skemmtilega formuð og hallinn mótaður þannig að hann nýtist sem best. Á baklóð er vel hannaður sólpallur umvafinn fallegu limgerði og formklipptum runnum. Garðurinn er í góðri rækt og ber vott um góða umhirðu.

Kinnargata 92a-92b, fjölbýlishús í Urriðaholti

Lóðin er glæsileg, nýleg og vel skipulögð. Aðkoman að inngöngum er skreytt með blómakerjum sem skapar hlýlegt viðmót. Vel skipulögð trjábeð með skemmtilegu plöntuvali og með góðu viðhaldi verður lóðin áfram glæsileg fyrirmynd fyrir Urriðaholt um ókomin ár.

Sjávargata 33

Sjávargata á Álftanesi er erfiður staður til þess að rækta gróður á, en íbúar Sjávargötu 33 hafa gert mikið átak í að gera lóðina glæsilega þrátt fyrir erfið skilyrði. Gróf möl sem yfirborðsefni í trjábeðum kemur mjög vel út, tónar vel við tré og runna og grasflöt sem er í góðu viðhaldi. Aðkoman er snyrtileg, hreinar stéttar og stuðlaberg.

Viðurkenning fyrir lóð fyrirtækja/stofnana 2026

GKG

Gólfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er staðsettur mitt á milli bæjarfélaganna. GKG er kominn með GEO-umhverfisvottun sem er alþjóðleg vottun. Allt umhverfi gólfvallarins er til mikillar fyrirmyndar í umhirðu og snyrtimennsku.

Snyrtilegasta gatan 2026

Góðakur

Góðakur liggur frá Vesturökrum í Akrahverfi. Götumynd Góðakurs er gróin, falleg og snyrtileg. Íbúar eru auðsjáanlega samstilltir um að halda lóðum sínum snyrtilegum og í samræmi við nærumhverfið.

Skemmtilegt opið svæði 2026

Búðakinn

Milli Búðahverfis og Lundahverfis leynist líklega eitt stærsta samfellda almenningsútivistarsvæði Garðabæjar, Búðakinn, um 5 hektarar að stærð. Svæðið er umkringt íbúðabyggð, en jafnframt vel tengt öðrum útivistarsvæðum bæjarins með göngu- og hjólastígum og undirgöngum undir Vífilsstaðaveg með tengingu í hraunin og upplandið. Þetta nær 5 hektara svæði er því ekki aðeins opið grænt svæði heldur fjölbreyttur almenningsgarður þar sem náttúra, listir og útivist nýtast öllum þeim sem heimsækja svæðið.

Búðakinn (opið svæði austan megin Búða) er manngert svæði frá um árinu 1986 og trjágróðurinn þar um 30-40 ára gamall. Í Búðakinn er leiksvæði og svæðið talsvert notað til útivistar af þeim sem þekkja til. Þar er útilistaverkið Samspil og Norræni vinabæjarlundurinn frá vinabæjarmóti árið 1992. Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti gróðursetti þar tré og reyniviðirnir sex eru gróðursettir af bæjarstjórum vinabæjanna.

Viðurkenning fyrir framlag til umhverfismála

Margrét Birna Sigurbjörnsdóttir íbúi á Hliðsnesi hlaut viðurkenningu fyrir framlag til umhverfismála.

Hún er Garðbæingur í húð og hár sem flutti á Hliðsnesið fyrir nokkrum árum. Hliðsnes á Álftanesi er lítill tangi út frá Garðaholti og Skógtjörn er norðan við Hliðsnes. Frá því að Margrét flutti á Hliðsnesið hefur hún gengið Hliðsnesið reglulega, nánast daglega, og tínt rusl og haldið þessari náttúruperlu hreinni. Margrét hefur fengið liðsinni frá starfsmönnum Garðabæjar við að hirða ruslapokana á tilteknum stað. Með ruslatínslu sinni við Hliðsnes og umhverfi þess hefur Margrét sýnt í verki gott fordæmi og það má með sanni segja að hún beri hag náttúrunnar fyrir brjósti.

Snyrtilegt umhverfi – árlegar umhverfisviðurkenningar

Umhverfisnefnd Garðabæjar auglýsir ár hvert eftir ábendingum um snyrtilegt umhverfi og fer í garðaskoðun á sumrin þegar ábendingar hafa borist frá íbúum. Fjölmargar ábendingar um fallega garða bárust umhverfisnefnd sem fór um bæinn og skoðaði garðana og snyrtilegt umhverfi um miðjan júlí. Í ár voraði snemma en sumarið hefur verið frekar vætusamt hér sunnanlands og mikill vöxtur hefur verið á öllum gróðri. Tré, runnar og fjölærar plöntur hafa flestar skartað sínu fegursta í sumar. Það var því vandasamt en skemmtilegt verk fyrir umhverfisnefnd þegar hún fór í skoðunarferð um mitt sumar að skoða garða víðs vegar um Garðabæinn sem íbúar höfðu sent inn ábendingar um í ár. Árlega er svo haldin hátíðleg athöfn í lok sumars þar sem eigendum lóða sem hljóta viðurkenningar er boðið til kaffisamsætis í Sveinatungu.