Beint í efni

Und­ir­bún­ing­ur að opn­un á Flótta­manna­veg langt kom­inn

Fréttir
11.06.2025

Margt hefur áunnist undanfarna mánuði í undirbúningsvinnu að opnun á Flóttamannaveg frá Urriðaholti.

Undirbúningur að opnun á Flóttamannaveg um Urriðaholtsstræti er nú langt kominn, hönnunin er í umferðaröryggisrýni og stefnt er að því að hægt verði að hefja framkvæmdir í haust.

Garðabær bindur vonir við að verkhönnun klárist í sumar og í beinu framhaldi muni Vegagerðin setja verkið í útboð.

Gert er ráð fyrir að í fyrsta framkvæmdaáfanga verði opnað frá Urriðaholtsstræti með hringtorgi.

Áhugasamir geta kynnt sér skipulagið hérna.

Íbúar Urriðaholts hafa reglulega viðrað áhyggjur sínar af öryggismálum í hverfinu á meðan ekki sé búið að opna á Flóttamannaveg. Rétt er að ítreka að Garðabær hefur átt í góðum samskiptum við viðbragðsaðila og útkallsaðila vegna öryggismála í bænum.

Gert er ráð fyrir að í fyrsta framkvæmdaáfanga verði opnað frá Urriðaholtsstræti með hringtorgi.