Beint í efni

Ung­menna­hraun í nýtt hús­næði

Fréttir
07.05.2026

Starfsemi Ungmennahrauns, frístundaþjónustu fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-20 ára, flyst í nýtt húsnæði haust.

Nýja aðstaðan er vandlega hannað 190 fermetra rými við Lambamýri á Álftanesi.

Áhersla hefur verið lögð á að hanna fallegt og aðgengilegt umhverfi.

„Garðabær hefur lagt mikla vinnu í að hanna rýmið með þarfir ungmennanna að leiðarljósi. Við erum mjög stolt af því að geta boðið upp á frístundaþjónustu í björtu og aðgengilegu húsnæði,“ segir Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks.

Fram undan eru framkvæmdir á rýminu. Hönnuður rýmisins er Nordic arkitektar og framkvæmdir og frágangur innanhúss er í höndum Aðalvíkur ehf. Strendingur sér um eftirlit.

Almar Guðmundsson fyrir hönd Garðabæjar og Hrafn Þór Jörgensson fyrir hönd Aðalvíkur ehf. skrifuðu undir verksamning um framkvæmdina.

Guðbjörg Brá, sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæja, og Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Garðabæjar, ásamt Almari Guðmundssyni og Hrafni Þór við undirritun verksamningsins.

Um Ungmennahraun

Í Ungmennahrauni er lögð áhersla á að veita þjónustu sem tekur ávallt mið af þörfum og getu hvers og eins. Markmiðið er að veita ungmennum með miklar stuðningsþarfir öruggt og skapandi umhverfi til að efla félagsfærni og sjálfstæði í aðlaðandi umhverfi.

Frístundaþjónustan er í boði eftir að skóladegi ungmennanna lýkur, nánar tiltekið frá 13:00 – 16:30. Opið er í vetrarfríum, jóla- og páskafríum og á starfsdögum framhaldsskóla frá kl. 08:30 til 16:30.

Áhersla hefur verið lögð á að hanna fallegt og aðgengilegt umhverfi.
Starfsmenn frá velferðarsviði og umhverfissviði, starfsmenn Ungmennahrauns, Almar og fulltrúar frá Aðalvík og Stendingi skoða nýja rýmið.
Ungmennahraun í nýtt húsnæði - Garðabær