Ungmennahúsið býður í sumarpartí

Ungmennahús Garðabæjar var sett á laggirnar í upphafi árs og fór starfsemin strax vel af stað. Fram undan er sumarfrí og af því tilefni verður skellt í skemmtilegt sumarpartí.
„Frá opnun í janúar hefur húsið fest sig í sessi sem mikilvægur samverustaður fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára,“ segir Ragnhildur Jónasdóttir, verkefnastjóri Ungmennahúss Garðabæjar.
„Á fyrstu mánuðum starfseminnar hafa fjölmörg ungmenni sótt starfið, tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum og átt þátt í að móta starfsemina með eigin hugmyndum og frumkvæði húsráðsins,“ bætir hún við.
Síðasti opnunardagur Torgsins fyrir sumarfrí er þriðjudagurinn 30. júní og af því tilefni verður skemmtilegt sumarpartí haldið. „Við kveðjum vorönnina með tónlist, veitingum, karókí og sumarstemningu. Lalli töframaður verður líka á svæðinu.“
Ungmennahúsið verður lokað í júlí og fram í ágúst. „Við hlökkum til að taka á móti öllum aftur að loknu fríi með nýrri dagskrá og spennandi verkefnum. Gleðilegt sumar,“ segir Ragnhildur að lokum.
Meðfylgjandi er auglýsing fyrir sumarpartíið, 30. júní.


Annars verður nóg um að vera í félagsmiðstöðvum Garðabæjar í sumar. Hér fyrir neðan má sjá sameiginlega dagskrá félagsmiðstöðvanna.
