Upplýsingar um Holtsbúð 87

Að gefnu tilefni vill Garðabær koma meðfylgjandi upplýsingum á framfæri varðandi Holtsbúð 87, betur þekkt sem Klaustrið.
Húsnæðið stendur autt á meðan möguleikar á framtíðarnýtingu og endurbyggingu hússins eru skoðaðir. Upp á síðkastið hefur fólk farið inn í húsið í leyfisleysi, rúður hafa verið brotnar og skemmdarverk hafa verið unnin á þeim lokunum sem bærinn hefur ítrekað sett upp.
Húsið er nú vaktað og unnið er að því að setja upp merkingar og eftirlitsmyndavélar við það. Vonir eru bundnar við að þessar ráðstafanir nægi til að afstýra því óásættanlega ástandi sem hefur skapast við húsið að undanförnu.
Garðabær hefur mikinn áhuga á að sjá húsið ganga í endurnýjun lífdaga og er stefnt að því að áætlanir um framtíðarnotkun hússins verði samþykktar fyrir árslok.
Í apríl árið 2024 kallaði Garðabær eftir tilboðum frá aðilum í samstarfsverkefni um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur húsnæðisins. Leitað var eftir aðila sem væri tilbúinn til að reka þar starfsemi sem rúmast innan ramma þeirra kvaða sem á því hvíla og samræmist gildandi skipulagi.* Samstarfssamningur var undirritaður í árslok 2024 en það samstarf hefur því miður ekki gengið eftir. Fyrr á þessu ári var því tekin sú ákvörðun í bæjarráði að skoða aðra möguleika á framtíðarnýtingu og endurbyggingu hússins.
Sem fyrr segir er horft til þess að ákvarðanir um framtíð hússins verði teknar á þessu ári. Strax í framhaldi af því verður farið í endurbætur á húsinu þannig að hægt sé að setja öfluga starfsemi sem hæfir húsinu og kyrrlátu umhverfi þess á laggirnar.
*Húsið var áður í eigu Sankti Jósefssystra. Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða aðra sambærilega starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga.