Upplýsingar um umferðaróhapp

Garðabær vill koma meðfylgjandi upplýsingum á framfæri vegna atviks sem átti sér stað fyrr í mánuðinum þegar skólarúta lenti í árekstri á leið með nemendur í skólasund.
Um leið og tilkynning um atvikið barst sveitarfélaginu hófst samtal við rútufyrirtækið en upplýsingagjöf til foreldra var þó greinilega ekki nægjanleg þykir okkur það miður.
Málið vakti skiljanlega upp sterk viðbrögð og er það tekið alvarlega.
Að gefnu tilefni viljum við miðla þeim upplýsingum sem liggja fyrir og greina frá næstu skrefum.
Í kjölfar atviksins hafði skólastjóri samband við foreldra símleiðis. Það var einnig sendur tölvupóstur á alla foreldra barna í þeim árgöngum sem um ræðir. Skólinn hafði strax samband við lögreglu sem hefur í framhaldinu rætt við foreldra og rútufyrirtækið. Verklag er til staðar þegar upp koma atvik sem þessi og ljóst er að við munum af varkárni endurskoða þær. Sömuleiðis hefur viðkomandi rútufyrirtæki endurskoðið sína verkferla. Við teljum mikilvægt að draga lærdóm af þessu atviki og skoða hvar úrbóta er þörf.
Öryggi og velferð nemenda og barna er ávallt í forgrunni og verður atvikið sem og viðbrögðin og samskiptin í kjölfarið skoðuð í þaula með það að markmiði að koma í veg fyrir að slíkt komi fyrir aftur.
Ábendingar foreldra sem fram hafa komið og gagnrýni á fullan rétt á sér og mun Garðabær í framhaldinu bjóða foreldrum á fund til að fara yfir málin.
Virðingarfyllst, fyrir hönd fræðslu- og frístundasviðs, Linda Udengård, sviðsstjóri