Upptökur af íbúafundum 2026
Fréttir
02.11.2026
Þrír íbúafundir voru á dagskrá í október.
Á þessum árlegu íbúafundum fer Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar yfir það helsta sem er að gerast í bænum hverju sinni, býður áhugasömum til samtals og situr fyrir svörum ásamt sviðsstjórum.
Fundaröðin í október var haldin undir yfirskriftinni „Hvað er að frétta í Garðabæ“ og geta áhugasamir geta nálgast upptökur af fundunum hér fyrir neðan.
Fyrsti fundur var haldinn í Álftanesskóla 14. október, annar fundur fór fram í Urriðaholtsskóla 20. október og sá þriðji var haldinn í Miðgarði 28. október.