Vegaframkvæmdir: Suðurnesvegur lokaður að hluta
Tilkynningar
10.08.2026

Seinnipart mánudags 10. ágúst verður hluta Suðurnesvegar á Álftanesi lokað vegna viðhaldsvinnu og einnig þriðjudaginn 11. ágúst vegna malbikunarvinnu frá kl. 10 og fram eftir degi. Hjáleið verður um Norðurnesveg.
Næstu tvo daga verða vegaframkvæmdir á Álftanesi og hluta Suðurnesvegar verður lokað.
- Mánudagur 10. ágúst - seinni part dags:
Suðurnesvegur verður lokaður milli Breiðumýri og hringtorgs við Álftanesveg. Hjáleið um Norðurnesveg og Breiðumýri.
Unnið verður að viðhaldi (ídráttur) á vegakaflanum sem er lokaður. - Þriðjudagur 11. ágúst - frá kl. 10 og fram eftir degi:
Ef veður leyfir mun Loftorka vinna að malbikun á Suðurnesvegi, milli Álftanesvegar og Brekkulands. Á meðan framkvæmdum stendur verður götukaflinn lokaður fyrir allri umferð.
Hjáleið verður um Norðurnesveg eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd með frétt. Kafli sem verður lokaður er merktur með rauðu.
Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega og fylgja vegamerkingum.