Beint í efni

Vega­vinna á Karla­braut og á hring­torgi við Víf­ils­staða­veg

Fréttir
27.05.2025

Á morgun, miðvikudaginn 28. maí mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Karlabraut, frá Vífistaðavegi að Hofstaðabraut, einnig á hringtorgi við Vífilsstaðaveg.

Á morgun, miðvikudaginn 28. maí mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Karlabraut, frá Vífistaðavegi að Hofstaðabraut, einnig á hringtorgi við Vífilsstaðaveg.

Áætlað er að framkvæmdir verði með eftirfarandi hætti:

  • Hringtorg Vífilsstaðavegar og Karlabrautar: Byrjað verður um klukkan 9:00 og unnið til hádegis. Áætlað er að opna fyrir umferð um klukkan 13:00
  • Karlabraut, frá Vífilsstaðavegi að Hofstaðabraut: Áætlað er að vinna hefjist um klukkan 12 og unnið fram eftir degi.

Götukaflarnir verða lokaðir fyrir alla umferð á meðan framkvæmdir standa yfir, en hjáleiðir verða merktar eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplönum.

Vegavinna