Beint í efni

Víf­ils­staða­veg­ur lok­að­ur milli Hafn­ar­fjarð­ar­vegs og Unn­ar­grundar

Tilkynningar
10.08.2026
Vífilsstaðavegur malbikun 10. ágúst 2026

Mánudaginn 10. ágúst verður hluta Vífilsstaðavegar lokað vegna malbikunarvinnu. Hjáleið um Hafnarfjarðarveg og Lyngás.

Mánudaginn 10. ágúst vinnur Loftorka að malbikun á Vífilsstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og hringtorgs við Unnargrund, ef veður leyfir.
Framkvæmdir hefjast um kl. 09 og standa fram eftir degi. Á meðan á framkvæmdunum stendur verður götukaflinn lokaður fyrir allri umferð.

Hjáleið verður um Hafnarfjarðarveg og Lyngás eins og sjá má á meðfylgjandi mynd með frétt.