Beint í efni

Vill greni­tréð þitt verða jóla­tré?

Fréttir
11.11.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Þjónustumiðstöð Garðabæjar auglýsir eftir fallegum grenitrjám úr einkagörðum til að nota sem jólatré á opnum svæðum bæjarins.

Starfsmenn bæjarins koma á staðinn, skoða tréð og fjarlægja það, lóðareigendum að kostnaðarlausu, ef það getur nýst sem jólatré. Þeir sem eiga falleg grenitré sem gætu hentað er velkomið að hafa samband við Sigurð Hafliðason, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Garðabæjar, í gsm síma 820 8527 eða í netfangi sigurdurhaf@gardabaer.is.