Beint í efni

Vinna haf­in við ný gatna­mót Álfta­nes­vegar og Garða­hrauns­vegar

Fréttir
10.11.2023

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Vinna er hafin við ný gatnamót Álftanesvegar og Garðahraunsvegar. Breytt lega gatnamótanna er til að bæta umferðaröryggi og auka greiðfærni.

Vinna er hafin við ný gatnamót Álftanesvegar og Garðahraunsvegar. Nýju gatnamótin eru staðsett nokkuð austar á Álftanesveginum en núverandi gatnamót og breytt lega er til að bæta umferðaröryggi og auka greiðfærni. Gatnamótin verða stefnugreind sem stuðlar að auknu öryggi vegfarenda. Einnig verður ný lega hjólreiða- og göngustígs. Sjá teikningu af legu gatnamótanna í mynd með frétt og hér í pdf-skjali.

Vegagerðin bauð út verkið í haust og það er Grafa og grjót ehf sem er verktaki verksins. Verklok eru áætluð sumarið 2024.

Vinna hafin við ný gatnamót Álftanesvegar og Garðahraunsvegar - Garðabær