Beint í efni

Virkni­þing eldra fólks í Garða­bæ

Fréttir
24.09.2026

Þriðjudaginn 29. sept. verður Virkniþing eldra fólks í Garðabæ haldið í Miðgarði.

Boðið verður upp á fimm hreyfistöðvar um morguninn og er öllum velkomið að koma og taka þátt. Engin þörf á skráningu bara mæta. Hægt er að velja sér tvær stöðvar, eina kl.10:30 og aðra kl.11:20.

Klukkan 12:00 verður þátttakendum boðið upp á súpu. Eftir matarhlé er boðið upp fyrirlestra um heilsu og bættan lífsstíl.

Einnig verður í boði að fá mælingar á fitu- og vöðvamassa líkamans og fulltrúar frá heilsugæslunni munu vera á staðnum og svara spurningum og veita góð ráð.

Dagskrá:

10:30- 11:10 – Hreyfistöðvar: val á milli göngufótbolta, línudans, boccia, pílu og stólajóga.

11:20-12:00 – Hreyfistöðvar: val á milli göngufótbolta, línudans, boccia, pílu og stólajóga.

12:00 – Matarhlé, boðið upp á súpu

13:00 – Kara Elvarsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Kjarna Sjúkraþjálfun, flytur erindi um áhrif hækkandi aldurs á stoðkerfið og bestu forvarnirnar.

13:30 – Anna Lind Traustadóttir, næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð, flytur erindi um næringu á efri árum, hollara val, styrk og vellíðan.

Viðburður á Facebook.