Vel heppnað virkniþing eldra fólks í Garðabæ
Fréttir
02.10.2026
Virkniþing eldra fólks í Garðabæ 2026 sem haldið var í Miðgarði heppnaðist einstaklega vel.
Boðið var upp á fimm hreyfistöðvar um morguninn og var öllum velkomið að koma og taka þátt. Boðið var upp á súpu í hádeginu og í framhaldi gátu þátttakendur hlýtt á fyrirlestra um heilsu og bættan lífsstíl. Kara Elvarsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Kjarna Sjúkraþjálfun, flutti erindi um áhrif hækkandi aldurs á stoðkerfið og bestu forvarnirnar. Anna Lind Traustadóttir, næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð, flutti erindi um næringu á efri árum, hollara val, styrk og vellíðan.
Einnig var í boði að fá mælingar á fitu- og vöðvamassa líkamans og fulltrúar frá heilsugæslunni voru á staðnum til að svara spurningum og veita góð ráð.











