Vorhreinsun lóða og hreinsunarátak Garðabæjar fram undan

Ríflega 30 gámum verður komið fyrir í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana.
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður með sama sniði í ár og undanfarin tvö ár, þ.e.a.s. að rúmlega 30 gámum verður komið fyrir í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana.
Vorhreinsun lóða fer fram dagana 8. til 26. maí í kjölfarið á hreinsunarátaki Garðabæjar sem stendur yfir frá 20. apríl til 4. maí.
Eldri borgurum og þeim sem þurfa aðstoð við að koma garðaúrgangi í gámana er bent á að hafa samband við þjónustumiðstöð Garðabæjar, sem verður þeim innan handar.
Hérna fyrir neðan má nálgast kort sem sýnir staðsetningu gámanna.
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar
Í árlega hreinsunarátakinu, sem er frá 20. apríl til 4. maí, eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar.
Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra umhverfismála Garðabæjar sem úthlutar svæðum til að hreinsa og veitir frekari upplýsingar: lindajo@gardabaer.is.
Praktísk atriði:
· Þátttakendur eru beðnir um að tína rusl á úthlutuðu svæði
· Hægt er að sækja ruslapoka í Þjónustumiðstöð Garðabæjar, Lyngási 18.
· Þjónustumiðstöðin lánar einnig ruslatínur fyrir þau sem þurfa.
· Þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega í sér poka.
· Pokum skal svo komið þannig fyrir að þeir fjúki ekki og séu á sýnilegum stað til að auðvelda móttöku.
· Að lokinni hreinsun skal senda staðfestingu og staðsetningu poka á lindajo@gardabaer.is, starfsmenn bæjarins munu sækja pokana.