Beint í efni

Vor­sýn­ing í Jóns­húsi stend­ur yfir frá 7.–9. maí

Fréttir
06.05.2026

Vorsýning félagsstarfs eldri borgara verður opnuð í Jónshúsi fimmtudaginn 7. maí.

Félag eldri borgara í Garðabæ og Álftanesi opnar glæsilega vorsýningu í Jónshúsi þann 7. maí og stendur sýningin yfir til 9. maí.

Á sýningunni verður afrakstur vetrarins í félagsstarfinu sýndur og eru sýningarmunir afar fjölbreyttir. Málverk, prjónaðir og helklaðir munir og verk úr ýmist leir, tré, leðri og postulíni verða á sýningunni svo dæmi séu tekin.

Formleg opnun sýningarinnar er klukkan 13:00, 7 maí. Þá flytur Harpa Rós Gísladóttir, formaður Öldungaráðs Garðabæjar, ávarp og opnar sýninguna. Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ, segir frá starfinu. Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, flytur nokkur lög.

Frá vorsýningunni í Jónshúsi 2025.