Yfirborðsfrágangur við Álftaneslaug
Tilkynningar
10.04.2026

Mánudaginn 13. apríl verður lokun sett upp framan við Álftaneslaug.
Mánudaginn 13. apríl verður lokun sett upp framan við Álftaneslaug vegna yfirborðsfrágangs eftir vinnu við endurnýjun á fráveitulögn. Sjá á meðfylgjandi mynd vinnusvæðið.
Áætluð verklok eru 13. maí.
P-merkt stæði og hleðslustæði verða aðgengileg við sundlaugina. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.