Fréttir og tilkynningar
Fréttir18.09.2023Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag
Garðabær og Ás styrktarfélag hafa gert þjónustusamning um rekstur á sértækri búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk við Brekkuás 2 í Garðabæ. Um er að ræða nýjan búsetukjarna sem er 588m2 að stærð með 7 einstaklingsíbúðum og starfsmannarými.
Fréttir14.09.2023Símkerfi Garðabæjar komið í lag
Vegna netbilunar hjá Vodafone var símkerfi Garðabæjar hjá þjónustuveri Garðabæjar og stofnunum bæjarins óvirkt um tíma í morgun en ætti að vera komið í lag núna.
Fréttir14.09.2023Útilegutæki og ferðavagnar
Eigendur ferðavagna og hvers kyns útilegutækja eru beðnir um að fjarlægja þá af bílastæðum skóla í Garðabæ þar sem skólastarf er hafið að fullu.
Fréttir11.09.2023Skipulagsgátt – Nýjung við skipulagsgerð, umhverfismat og framkvæmdar-leyfisveitingar
Við hvetjum íbúa til að kynna sér málið
Fréttir07.09.2023Góður íbúafundur í Urriðaholti
Miklar umræður sköpuðust um hús sem hafa verið lengi í byggingu í hverfinu, en einnig var farið yfir nýtt sorphirðukerfi, leiksvæðin í hverfinu, snjómokstur, umferð um hverfið og opnun út á Flóttamannaveg.
Fréttir07.09.2023Ekki missa af Rökkvunni
Tónlistin er í forgrunni á Rökkvunni en auk þess fer fram myndlistarsýning og markaður með hönnun og list verður starfræktur.
Fréttir06.09.2023Menningardagskrá í Garðabæ haustið 2023
Menningardagskráin sem kynnt er í bæklingnum er gestum að kostnaðarlausu.
- Fréttir29.08.2023
Verðbólga hefur áhrif á àrshlutauppgjör
„Fjárhagsstaðan er traust og við búum vel að því. Tekjur af byggingarétti og gatnagerð munu styrkja afkomuna á seinni hluta ársins“
Fréttir29.08.2023Opinn fundur um Arnarland
Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.
Fréttir25.08.2023Skráning í frístundabíl
Frístundabíllinn í Garðabæ hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf. Til að börn geti nýtt sér frístundabílinn er nauðsynlegt að skrá þau í bílinn.
Fréttir24.08.2023Grenndargámar fyrir málm
Búið er að setja upp grenndargáma fyrir málm á þremur stöðum í Garðabæ.
Fréttir22.08.2023Þriðja úthlutun leikskólaplássa gengur vel
Garðabær auglýsir nú fjölbreytt og spennandi störf í leikskólum bæjarins og daglega eru leikskólarnir að ráð til sín nýtt fólk.
Fréttir17.08.2023Hægt að bæta við örfáum nemendum í hljóðfæranám
Nemendur sem hafa áhuga á blásturshljóðfærum eru hvattir til að sækja um!
Fréttir16.08.2023Nýjar reglur um tekjutengingu afsláttar teknar í gildi
Nýjar reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra hafa tekið gildi. Reglurnar eiga að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur með það að markmiði að bæta kjör fjölskyldna.
Fréttir14.08.2023Loftlagsstefna höfuðborgarsvæðisins undirrituð
Bæjarstjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu ásamt borgarstjóra og framkvæmdastjóra SSH undirrituðu formlega loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku.