Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Garðabær og Ás styrktarfélag hafa gert þjónustusamning um rekstur á sértækri búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk við Brekkuás 2 í Garðabæ. Um er að ræða nýjan búsetukjarna sem er 588m2 að stærð með 7 einstaklingsíbúðum og starfsmannarými.
Fimmtudaginn 14. september sl. skrifuðu þeir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Þórður Höskuldsson, formaður stjórnar Áss styrktarfélags, undir þjónustusamninginn. Ás styrktarfélag lítur til ríkjandi hugmyndafræði í samfélaginu hvað varðar útfærslur á rekstri, þjónustu og öðrum verkefnum. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að sjálfstæðu lífi á eigin forsendum.

Íbúar flytja inn síðar í haust
Búið er að úthluta í allar 7 íbúðirnar í Brekkuási og er áætlað að fyrstu íbúarnir flytji inn í nóvember næstkomandi. Rúmt ár er síðan fyrsta skóflustungan var tekin að þessum nýja búsetukjarna við Brekkuás og framkvæmdir hafa gengið vel. Sjá nánar hér í eldri frétt.
Bygging búsetukjarnans er hluti af stefnu bæjarins um áframhaldandi uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk samhliða fjölgun annarra búsetuúrræða og fækkun herbergjasambýla.