Fréttir og tilkynningar
Fréttir04.03.2022Sumarstörf - umsóknarfrestur rennur út 7. mars nk.
Garðabær hefur auglýst til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir ungt fólk árið 2022. Minnt er á að umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 7. mars nk.
Fréttir04.03.2022Opnunarhátíð og innflutningsboð í Hönnunarsafni Íslands
Laugardaginn 5. mars klukkan 15 verður opnun sýningarinnar Sund í Hönnunarsafninu fagnað en sýningin hefur verið opin almenningi frá því í febrúar. Þá verður einnig innflutningsboð hjá vöruhönnuðunum sem kalla sig Studio Allsber en þær eru í vinnustofudvöl í safninu.
Fréttir03.03.2022Furðuverur sungu á öskudag
Kátir krakkar í skrautlegum búningum lögðu margir leið sína í þjónustuver Garðabæjar á Öskudaginn í gær, miðvikudaginn 2. mars.
Fréttir01.03.2022Gul veðurviðvörun 2. mars
Gul veðurviðvörun er í gildi á morgun miðvikudag 2. mars frá kl. 06:00 til kl.12:30.
Fréttir01.03.2022Tóvinnusmiðja fyrir alla fjölskylduna
Sunnudaginn 6. mars klukkan 13 fer fram tóvinnusmiðja fyrir alla fjölskylduna sem Ásthildur Magnúsdóttir leiðir.
Fréttir01.03.2022Snjómokstur og hálkuvarnir – staðan í dag
Í Garðabæ hefur verið unnið með öllum tækjum og þeim mannskap sem tiltækur er frá kl. 03 á nóttunni langt fram eftir degi í langan tíma til að vinna að snjómokstri og hálkuvörnum
Fréttir28.02.2022Hanna Dóra og Snorri Sigfús flytja vögguvísur á hádegistónleikum 2. mars
Miðvikudaginn 2. mars kl. 12:15 heldur hádegistónleikaröðin Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar áfram eftir stutt heimsfaraldurshlé.
Fréttir25.02.2022Appelsínugul veðurviðvörun
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi í dag föstudag 25. febrúar frá kl 11:00 til 17:00. Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í skóla eða frístundastarfi. Orange warning has been issued today Friday 25th from 11:00 until 17:00.
Fréttir25.02.2022Innritun í grunnskóla og kynningar skóla
Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2016) og 8. bekk (f. 2009) fer fram dagana 7. - 11. mars nk. Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna.
Fréttir25.02.2022Huldufólk, landvættir og horgemlingur – myndbönd fyrir krakka
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar stóð fyrir gerð myndbanda þegar ekki var hægt að bjóða viðburði vegna samkomutakmarkanna. Nýjustu myndböndin eru gerð eftir handriti þjóðfræðingsins Dagrúnar Óskar Jónsdóttur. Myndböndin þrjú fjalla um huldufólk, landvættina og sögur af þeim og svo leiki barna.
Fréttir25.02.2022Samgöngustígur meðfram Hafnarfjarðarvegi -kynningarfundur
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur auglýst tillögu að breytingum deiliskipulags Arnarness í samræmi við 1. mgr. 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 41. gr. og 1. mgr 43. gr sömu laga. Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 1. mars kl 17:00.
Fréttir25.02.2022Leirlistasmiðjan Álfar og Óskasteinar
Leirlistasmiðjan Álfar og Óskasteinar verður haldin á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 26. febrúar kl. 13:00 til 14:00.
Fréttir24.02.2022Áfangastaðurinn höfuðborgarsvæðið
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ferðamála og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa undirritað samning um stofnun samstarfsvettvangs sveitarfélaga og atvinnulífsins á höfuðborgarsvæðinu um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið.
Fréttir24.02.2022Fyrsti landsleikurinn í Miðgarði
Fyrsti landsleikurinn í hinni nýju knattspyrnuhöll Garðbæinga, Miðgarði, fór fram í hádeginu í gær þegar flautað var til leiks í vináttulandsleik U16 ára landsliða kvenna hjá Íslandi og Sviss.
Fréttir23.02.2022COVID-19: Aflétting allra takmarkana innanlands og á landamærum
Frá og með föstudeginum 25. febrúar verður öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum vegna heimsfaraldurs COVID-19 aflétt, jafnt innanlands og á landamærunum.