Fréttir og tilkynningar
Fréttir17.01.2023Skemmtilegir viðburðir á Hönnunarsafni Íslands
Föstudaginn 20. janúar klukkan 18 verður sýningin Fallegustu bækur í heimi opnuð á Pallinum og á sama tíma verður innflutningsboð hjá keramikhönnuðinum Ödu Stańczak sem verður í vinnustofudvöl í Hönnunarsafninu fram á vorið.
Fréttir12.01.2023Samningur við Hjálparsveit skáta í Garðabæ
Á dögunum skrifuðu þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Íris Dögg Sigurðardóttir formaður Hjálparsveit skáta í Garðabæ undir þjónustusamning um stuðning við starfsemi sveitarinnar.
Fréttir12.01.2023Skákhátíð Fulltingis í Garðabæ
Skákhátíð Fulltingis var sett með hátíðlegri athöfn mánudagskvöldið 9. janúar í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ.
Fréttir10.01.2023Menningardagskrá vetur/vor 2023 kemur út
Á morgun, miðvikudaginn 11. janúar verður borinn í hús dagskrárbæklingur Menningar í Garðabæ en jafnframt verður hægt að nálgast eintök í þjónustuveri Garðabæjar, á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands.
Fréttir09.01.2023Steinar og Ragnheiður hlutu heiðursviðurkenningar
Íþróttafólk í Garðabæ fékk viðurkenningar fyrir árangur ársins 2022 á íþróttahátíð bæjarins sem fram fór í Miðgarði á sunnudaginn sl. 8. janúar. Þá voru einnig veittar heiðursviðurkenningar vegna starfa að íþrótta- og æskulýðsmálum en það voru þau Steinar J. Lúðvíksson í Stjörnunni og Ragnheiður Stephensen í Stjörnunni og GKG sem þær hlutu.
Fréttir08.01.2023Hilmar Snær og Ásta eru íþróttamenn Garðabæjar 2022
Íþróttamenn Garðabæjar árið 2022 eru Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður og Ásta Kristinsdóttir hópfimleikakona í Stjörnunni. Tilkynnt var um kjör þeirra á íþróttahátíð Garðabæjar sem fór fram í dag, sunnudaginn 8. janúar í Miðgarði.
Fréttir06.01.2023Nýtt byggingarleyfi gefið út fyrir leikskóla við Holtsveg
Á fundi í dag samþykkti bæjarráð Garðabæjar afgreiðslu byggingarfulltrúa um að byggja fimm deilda leikskóla að Holtsvegi 20. Byggingarframkvæmdir á lóðinni munu nú halda áfram eftir stutt hlé.
Fréttir05.01.2023Íþróttafólk Garðabæjar
Tilkynnt verður um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fer fram sunnudaginn 8. janúar 2023 kl. 13 í Miðgarði.
Fréttir04.01.2023Sorphirðudagatal 2023 -tæming á tunnum tveimur dögum á eftir áætlun
Sorphirðudagatal fyrir árið 2023 er komið á vef Garðabæjar. Þar má finna dagsetningar á losun sorp- og pappírstunna á árinu. Undanfarnar vikur hefur orðið röskun og seinkun á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu en í Garðabæ er tæming á tunnum nú tveimur dögum á eftir áætlun.
Fréttir04.01.2023Jólatré hirt 7.-8. janúar
Jólatré verða hirt í Garðabæ helgina 7.-8. janúar nk. Íbúar sem ætla að nýta sér þjónustuna eru beðnir um að ganga frá trjánum út fyrir lóðamörk þannig að þau geti ekki fokið.
Fréttir03.01.2023Fyrstu hádegistónleikar ársins -Tríó Sól
Miðvikudaginn 4. janúar kl. 12:15 fara fram fyrstu hádegistónleikar ársins í röðinni Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.
Fréttir28.12.2022Áramótabrennur í Garðabæ
Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöldi, við Sjávargrund kl. 21 og á Álftanesi kl. 20:30.
Fréttir27.12.2022Tafir á sorphirðu vegna veðurs
Vegna mikillar snjókomu undanfarna daga hafa orðið tafir á sorphirðu í íbúðagötum í bænum.
Fréttir23.12.2022Listasmiðja fyrir flóttabörn í Garðabæ
Undanfarið ár ár hefur Lionslúbburinn Eik í Garðabæ haldið úti listasmiðju fyrir flóttabörn í Garðabæ. Markmiðið með listasmiðjunni er að hjálpa börnum sem hafa hrakist frá heimalandi sínu og eru flóttamenn í ókunnu landi þar sem kringumstæður eru þeim framandi á allan hátt.
Fréttir23.12.2022Taktu þátt í vali á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar
Fimm konur og fimm karlar hafa verið tilnefnd af íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar (ÍTG) til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2022. Vefkosning hefst 23. desember og stendur yfir til og með 1. janúar 2023.