Vinnuskóli Garðabæjar
Almenn störf í Vinnuskólanum eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins auk skipulagðs tómstundastarfs.
Vinnuskóli Garðabæjar býður unglingum í 8., 9. og 10. bekk upp á fræðandi og uppbyggilega sumarvinnu í öruggu starfsumhverfi. Flest verkefni snúa að garðyrkju og umhirðu í bænum en eldri unglingar eiga möguleika á aðstoðarstarfi í leikskóla eða á sumarnámskeiðum.
Netfang: vinnuskolinn@gardabaer.is.Símanúmer: 590-2575
Skráning í Vinnuskólann
Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk sem eiga lögheimili í Garðabæ eða eru í skólum bæjarins geta skráð sig í Vinnuskólann. Allir sem uppfylla þau skilyrði fá vinnu. Foreldrar skrá börnin sín í Vinnuskólann gegnum Völu vinnuskóla . Innskráning er með rafrænum skilríkjum og velja þarf Garðabæ sem sveitarfélag.
Skráning í Völu opnar 15. febrúar og lýkur 15. maí 2026.
Gögn fyrir skráningu
- Bankareikningur. Unglingurinn þarf að eiga bankareikning á sinni kennitölu.
- Netföng. Gefa þarf upp virk netföng hjá unglingi og forsjáraðila í skráningu í Völu sem hægt er að nota í samskiptum yfir sumarið.
Skrá í vinnuskólann
Sérþarfir og óskir
Í skráningarferlinu er reitur merktur „Annað“ þar sem hægt er að fylla inn óskir vegna sérþarfa og upplýsingar um heilsufar (einkum ef það getur haft áhrif á starfsgetu) auk annarra athugasemda.Störf í garðvinnu
Flestir fá vinnu í almennum hópum við garðvinnu. Unglingar vinna að jafnaði með öðrum úr sama skólahverfi og á sama aldri en ekki er hægt að tryggja að vinkonur eða vinir raðist saman í hóp. Upplýsingar um niðurröðun í hópa eru birtar í Völu vinnuskóla í byrjun júní og tilkynning er send með tölvupósti.Aðstoðarstörf fyrir 9. og 10. bekk
Unglingar í 9. og 10. bekk geta við skráningu óskað eftir aðstoðarstarfi hjá stofnunum og æskulýðsfélögum. Vinnutími í aðstoðarstörfum getur verið frábrugðinn almennum garðvinnuhópum og aðlagaður tímasetningu sumarnámskeiða sem sum eru fram í ágúst.Merkt er við þessi störf sem val í skráningarferlinu í Völu vinnuskóla. Starfsstaðirnir fá síðan vallista og ráða til sín þá sem best henta. Það er ekki öruggt að allir fái sitt val heldur ræðst það af eftirspurn og getu. Staðfesting ætti að koma í ljós í byrjun júní þegar skipulag og umfang sumarnámskeiða félaga liggur fyrir.
Skipulag aðstoðarstarfa og skráning vinnutíma er á ábyrgð viðkomandi starfsstaða en ef spurningar vakna er öllum velkomið að hafa samband við Vinnuskólann.
Vinnutími
Árið 2026 hefst Vinnuskólinn:
9. og 10. bekkur: fimmtudaginn 11. júní
8. bekkur: mánudaginn 15. júní
Áætlaður lokadagur í garðvinnuhópum vinnuskólans er föstudaginn 24. júlí. Ekki er unnið 17. júní.
14 ára (8. bekkur)
Almenn vinna er fjóra daga vikunnar kl. 8:30 til 12:00.
Daglegur vinnutími er 3,5 tímar.
Einn dag í viku tekur hver hópur þátt í Egó–forvarnar- og hópeflisverkefni. Þá er mæting frá kl. 9:00 til 11:00. Hópar fá skipulag í upphafi sumars um hvaða vikudag þeir mæta í Egó.
Vinnutími er samtals 16 tímar á viku.
15 til 16 ára (9. og 10. bekkur)
Unnið er allan daginn frá 8:30 til 12:00 og frá 13:00 til 15:00.
Daglegur vinnutími er 5,5 tímar.
Samtals er möguleiki á 27,5 tíma vinnu á viku.
Vinnuskólinn getur takmarkað vinnutímann ef skráning og aðsókn fer fram úr áætlunum.
Kaffi og hádegismatur
Kaffitími: Kl. 10:00 til 10:15.
Hádegishlé: Kl. 12:00 til 13:00.
Gott er að taka með nesti fyrir daginn þar sem ekki gefst mikill tími til að fara í búð á vinnutíma.
Mæting á starfsstaði
- Nemendur sem búa á Álftanesi mæta í Félagsmiðstöðina Elítuna.
- Nemendur í Urriðaholti mæta í Urriðaholtsskóla.
- Aðrir mæta í Garðaskóla.
Fjarvera og veikindi
Forráðafólk á að láta vita ef forföll verða. Hægt er að tilkynna:- í síma vinnuskólans 590 2575
- með tölvupósti á vinnuskolinn@gardabaer.is
- beint í síma til flokksstjóra.
Unglingar vinna sér ekki inn veikindarétt. Veikindadagar eru því ekki greiddir og ekki er hægt að vinna þá upp síðar.
Leyfi
Það er hægt að fá leyfi á starfstímabilinu sem unglingur starfar á en það er ekki hægt að vinna upp tapaðan starfstíma. Mikilvægt er að forráðafólk láti flokkstjóra vita með góðum fyrirvara um leyfi.Laun
Launaseðlar koma inn á Mínar síður á Ísland.is þar sem unglingurinn þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Launaviðmið: Laun eru reiknuð í hlutfalli af launaflokki 118 samkvæmt kjarasamningi bæjarstarfsmanna.
Orlof: Orlof er 10,17% og greiðist ofan á alla tímavinnu. Orlof er greitt út með launum.
Lífeyrissjóður: Greiðslur í lífeyrissjóð hefjast mánuði eftir 16 ára afmæli.
Laun 2026 (án orlofs)
| Fæðingarár | Laun á klst. | Hlutfall af launafl. 118 |
| 2012 | 936 kr. | 30% |
| 2011 | 1.248 kr. | 40% |
| 2010 | 1.560 | 50% |
Launatímabil
Laun eru greidd 1. hvers mánaðar fyrir liðið launatímabil. Ef 1. dagur mánaðar lendir á frídegi eru launin greidd síðasta virka dag mánaðar.
10. júní til 20. júní
21. júní til 20. júlí
21. júlí til 20. ágúst
Skráning tíma og eftirlit
Hægt er að fylgjast með skráðri viðveru í Völu vinnuskóla. Mikilvægt er að forráðafólk og unglingar fylgist vel með hvort tímaskráning sé rétt.
Frádráttur
Seinkomur eru dregnar frá vinnutíma. Einnig er flokkstjórum heimilt, að undangenginni viðvörun, að skrá ekki fullan vinnutíma hjá nemendum sem eru ítrekað óvirkir í starfi og skila engu vinnuframlagi.
Skattur og persónuafsláttur 16 ára – Mikilvægt!
Allir á 16. ári og eldri þurfa að greiða skatt og það er á ábyrgð hvers og eins að ráðstafa sínum persónuafslætti til vinnuveitanda. Gott er að huga að þessu tímanlega og skila skattupplýsingum í fyrstu vinnuviku. Það er ekki hægt að leiðrétta eftir á.
Leiðbeiningar til að nýta persónuafslátt
Senda skjalið á laun@gardabaer.is með upplýsingum um hvernig eigi að ráðstafa persónuafslætti.
Hvort óskað er eftir að nýta uppsafnaðan persónuafslátt.
Hlutfall persónuafsláttar sem á að nýta.
Frá hvaða tíma persónuafsláttur á að taka gildi.
Klæðnaður og öryggi
- Nemendur mæta í eigin fötum og mælt með að nota föt sem mega verða óhrein og slitna.
- Það er mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Flokkstjórar geta sent nemendur heim ef þeir mæta illa klæddir svo þeim verði ekki kalt eða þeir blotni.
- Nemendur fá öryggisvesti sem skylt er að nota við vinnu.
- Nauðsynlegt er að nota vinnuhanska í gróðurreitum vegna öryggis. Hægt er að kaupa hanska af flokkstjóra í skiptum fyrir einn vinnutíma.
- Þegar sólin skín er mikilvægt að vera með derhúfu og muna eftir sólarvörn.
Vala Vinnuskóli:
Skráning í Vinnuskólann er í gegnum Völu vinnuskóla. Þar geta forráðamenn líka séð skráða viðveru og tíma yfir sumarið. Smellt er á stækkunargler lengst til hægri hjá virkri umsókn þá er hægt að sjá heildartíma yfir sumarið sem og hvaða daga viðvera hefur verið skráð.


