Kortavefur
Á kortavef sveitarfélagsins má nálgast ýmsar upplýsingar um bæjarlandið, teikningar af húsbyggingum og framkvæmdaráætlun.
Smelltu hér til að fara inn á kortavef Garðabæjar
Kortavefurinn veitir m.a. upplýsingar um staðsetningu lagna, teikningar af öllum húsum í Garðabæ, snjómokstur, fornminjar og framkvæmdaráætlun bæjarins fyrir hvert ár. Kortavefurinn er einnig tengdur skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þar sem nálgast má skipulög í sveitarfélaginu.
Leiðbeiningar
Til að nota hina ýmsu möguleika á kortinu þarf að:
- haka í viðkomandi reit í upplýsingaglugganum efst til hægri og þá birtast upplýsingarnar á kortin
Til að finna teikningar af húsum þarf að:
- stækka kortið svo húseignin sjáist með því að smella nokkrum sinnum á + takkann neðst til hægri.
- haka í „Teikningar af byggingum“ í upplýsingaglugganum
- smella á appelsínugula depilinn á viðkomandi húsi