Beint í efni
IS

Sam­starfs­samn­ing­ur við Æsku­lýðs­fé­lag Bessa­staða­sóknar und­ir­rit­að­ur

Fréttir
22.04.2026

Endurnýjaður samningur um æskulýðsstarf á vegum Æskulýðsfélags Bessastaðasóknar hefur verið undirritaður.

Garðabær og Bessastaðasókn hafa undirritað endurnýjaðan samstarfssamning um framkvæmd æskulýðsstarfs á Álftanesi. Samningurinn gildir til loka árs 2028 og felur Æskulýðsfélagi Bessastaðasóknar meðal annars að efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga og vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ.

Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar skal við framkvæmd samningsins huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.

Hlutverk Æskulýðsfélags Bessastaðasóknar er meðal annars að:

  • Efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, meðal annars í formi sunnudagaskóla.
  • Efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í Garðabæ.
  • Annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf, lífsleikni og almenna siðfræði.
  • Annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga í samstarfi við önnur félög og stofnanir í Garðabæ.
  • Vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ og auka breidd og valkosti í æskulýðsstarfi í bænum.
  • Bjóða upp á foreldramorgna með fræðslu og góðu samfélagi.
  • Bjóða aðstoð við lífsleiknikennslu í FG með fræðslu um sorgarúrvinnslu og almennt hjálparstarf.
  • Tilnefna fulltrúa í forvarnarteymi bæjarins og taka þátt í forvarnarfræðslu í samstarfi við forvarnarfulltrúa Garðabæjar.