Sögugöngur í Garðabæ í tilefni 50 ára afmælis

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á fjórar áhugaverðar sögugöngur um Garðabæ.
Fyrsta gangan verður farin um Arnarnesið undir leiðsögn Péturs Ármannssonar arkitekts og Sigríðar Sigurjónsdóttur forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands.
Arnarnesið er fyrsta skipulagða hverfið þar sem kveðið var á um að byggingar skyldu hannaðar af arkitektum. Á vestanverðu nesinu er að finna perlur úr íslenskri byggingarlistasögu frá sjöunda áratugnum, meðal annars einbýlishús eftir Manfreð Vilhjálmsson, Helga Hjálmarsson og Gunnar Hansson.
Lagt verður af stað frá bílastæðinu við hliðina á Mávanesi 1.
Þátttaka er gjaldfrjáls en miðað er við hámark 40 þátttakendur sem þurfa að skrá sig hér: Skráning - Arkitektaganga um Arnarnesið
Næstu göngur eru sem hér segir:
Fimmtudagur 23. júlí klukkan 20:00
Silfurtúnið með Baldri Ó. Svavarssyni arkitekt.
Gangan hefst við Hagkaup, Litlatúni.
Skráning: Silfurtúnið með Baldri Ó. Svavarssyni arkitekt
Fimmtudagur 13. ágúst klukkan 17:00
Útilistaverk í Garðabæ með Erlu Bil.
Gangan hefst við Uppsprettu eftir Pétur Bjarnason við Vídalínskirkju og lýkur í Silfurtúni.
Skráning: Útilistaverk í Garðabæ með Erlu Bil
Fimmtudagur 27. ágúst klukkan 17:00
Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni um Vífilsstaði.
Farið frá aðalbílastæðinu.
Skráning: Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni um Vífilsstaði
Miðað er við 40 þátttakendur í hverri göngu, opið fyrir skráningu þar til öll pláss fyllast.