Lýðheilsa og forvarnir
Markmið Garðabæjar er að stuðla að vellíðan og velsæld allra íbúa með heilsueflandi aðgerðum.
Lýðheilsu- og forvarnastefna

Markmið lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar er að stuðla að vellíðan og velsæld allra íbúa með heilsueflandi aðgerðum.
Lýðheilsu- og forvarnastefnan leggur áherslu á samvinnu heimila, skóla, íþróttafélaga og annarra hagaðila til að ná árangri. Stefnan byggir á samstarfi ólíkra málaflokka og tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálanum.
Stefnan byggir á 6 megináherslum:
- Upplýst samfélag: Ákvarðanir byggja á bestu fáanlegum upplýsingum og rannsóknum. Lögð er áhersla á að miðla fræðslu um hagi og líðan íbúa, fjölbreytileika og jafnrétti.
- Öruggt samfélag: Unnið er markvisst að netöryggi, umferðaröryggi og forvörnum gegn ofbeldi og mismunun til að tryggja öryggi íbúa. Samtakamáttur íbúa, eins og nágrannavarsla, er efldur til að auka öryggi í hverfum.
- Öflugt samfélag: Hvatt er til þátttöku í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og menningarstarfi fyrir alla aldurshópa. Við viljum virkja foreldra, fjölskyldur, íbúa, félög, stofnanir og fyrirtæki til samstarfs og uppbyggingar á félagsauði.
- Hvetjandi samfélag: Boðið er upp á fjölbreytt frístundatilboð, vinnuskóla fyrir ungmenni og stuðning við íþróttafélög til að hvetja alla íbúa til virkni.
- Ábyrgt samfélag: Áhersla er lögð á umhverfisvernd, endurvinnslu og að sporna gegn áhættuhegðun og vímuefnaneyslu barna og ungmenna.
- Heilsueflandi samfélag: Lýðheilsa er lögð til grundvallar við ákvarðanatöku bæjarins. Stuðlað er að bættri andlegri og líkamlegri heilsu með góðu aðgengi að útivistarsvæðum, stígum og íþróttamannvirkjum fyrir alla.
Framkvæmdaáætlun íþrótta og tómstunda
Framkvæmdaáætlun íþrótta- og tómstundamála Garðabæjar er ætlað að treysta grunninn og móta framtíðarsýn málaflokksins í Garðabæ. Lögð er áhersla á að íbúar hafi fjölbreytt val í íþróttastarfi, æskulýðsstarfi og tómstundastarfi og að aðstaða til þess sé góð.
Áætlunin tekur mið af Lýðheilsu- og forvarnastefnu bæjarins, einkum kafla 3, 4 og 6. Áætluninni er skipt í 4 meginflokka.
Íþróttastarf og félagsstarf barna og ungmenna
Öll börn og ungmenni eiga að fá jöfn tækifæri til að stunda reglubundið og skipulagt starf undir leiðsögn hæfra þjálfara og leiðbeinenda.
- Aðgengi og framboð: Tryggja á örugga aðstöðu og fjölbreytt framboð á öllum skólastigum í samstarfi við félög. Þátttakendur njóta stuðnings í formi hvatapeninga og boðið verður upp á sætaferðir með frístundabíl á milli staða.
- Samstarf: Efla á samstarf milli skóla, frístundaheimila og frjálsra félaga. Lögð er áhersla á að starf yngstu barnanna fari fram innan eða í tengslum við skóladaginn og að æfingum barna yngri en 12 ára sé lokið fyrir klukkan 18:00.
Almenningsíþróttir
Markmiðið er að gefa íbúum tækifæri til að stunda alhliða heilsurækt og tileinka sér heilbrigða lífshætti.
- Aðgengi: Upplýsingar um hlaupaleiðir, gönguleiðir, reiðhjólaleiðir og aðgengi að íþróttamannvirkjum skulu alltaf vera aðgengilegar. Setja skal upp upplýsta reiðhjólastíga í gatnakerfinu.
- Aðstaða og framboð: Almenningsgarðar og opin svæði séu með skipulögðum leiksvæðum. Styðja skal við almenningsíþróttadeildir, hópa sem leigja tíma, uppbyggingu golfvalla og félög eldri borgara.

Afreksíþróttir
Markmiðið er að íþróttalið og íþróttafólk geti stundað íþrótt sína á afreksstigi og um leið skapað jákvæðar fyrirmyndir.
- Stuðningur: Styrkja á íþróttafólk til frekari afreka, meðal annars úr afrekssjóði, og veita ferðastyrki vegna landsliðsferða erlendis.
- Þjálfun og aðstaða: Stuðla á að frekari menntun þjálfara og tryggja að hæfustu þjálfararnir séu valdir til starfa. Aðstaða til keppni og æfinga á að vera sambærileg við það besta sem gerist.
Æskulýðsstarf og tómstundastarf
Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt starf sem eflir félagslega færni, samskipti og félagsauð allra bæjarbúa.
- Starf og aðstaða: Efla á samstarf skóla, félagsmiðstöðva, íþróttafélaga og æskulýðsfélaga og nýta húsnæði bæjarins sem best. Faglegt starf á að vera hluti af námsframboði og gæta á þess að ráða félagsfræðinga og tómstundafræðinga til starfa.
- Fjölbreytni: Starfrækja á miðstöðvar fyrir alla aldurshópa, þar á meðal ungmennahús fyrir 16 til 25 ára og félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara. Einnig á alltaf að vera í boði skipulagt sumarstarf fyrir börn og unglinga, til dæmis í gegnum vinnuskólann.
Forvarnarátakið Verum klár
Garðabær tekur þátt í forvarnarátaki Reykjavíkurborgar Verum klár sem er ætlað að vekja samfélagið til vitundar um þær áskoranir sem blasa við í forvarnarstarfi.
Markmiðið forvarnarátaksins Verum Klár er að ná til barna og ungmenna með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum, en líka til foreldra og annarra sem gegna mikilvægu hlutverki í forvarnarstarfi. Verum klár á því sem skiptir sköpum fyrir velsæld barna og ungmenna.
Samvera með fjölskyldu er eitt af því sem skiptir hvað mestu máli þegar kemur að vellíðan barna og ungmenna. Rannsóknir sýna að eftirfarandi þættir hafa góð og verndandi áhrif á börn og ungmenni og minnka líkur áhættuhegðun, depurð, kvíða og annarri vanlíðan.
- Öflugt foreldrasamstarf
- Umhyggja og hlýja
- Þátttaka í skipulögðu starfi
- Foreldrar viti með hverjum og hvar ungmenni eru á kvöldin og um helgar
- Þekkja vini barna sinna og foreldra vina
- Að setja skýrar reglur um hluti í daglegu lífi barnanna. Hvað má gera og hvað ekki, bæði heima og utan heimilis
- Virða útivistartímann
- Leyfa ekki foreldralaus partý
- Tími sem varið er með foreldrum, s.s.:
- Spila saman
- Horfa á bíómynd
- Elda og/eða baka saman
- Borða saman
- Taka saman þátt í verkefnum sem þarf
Við viljum því hvetja foreldra til að taka höndum saman, standa vörð um verndandi þætti og virða aldurstakmarkanir. Bæjarhátíðir og Menningarnótt eru ekki ætluð eftirlitslausum börnum og unglingum.
Átakið Verum klár snýst um að vera klár og sýna hvort öðru virðingu, samkennd og stuðning.