Frístundabíllinn
Frístundabíllinn í Garðabæ keyrir börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf. Barnið þarf ekki að vera í frístundaheimili en nauðsynlegt er að skrá það í bílinn.
Skráning í frístundabílinn
Nauðsynlegt er að skrá barnið í Frístundabílinn í gegnum Völu vetrarfrístund í upphafi hverrar annar, hvort sem barnið er í frístundaheimili eða ekki.
Við skráningu þarf að velja:
- Hvar barnið tekur bílinn.
- Tíma dags.
- Hvert barnið er að fara.
Gjald fyrir frístundabílinn
Gjald fyrir frístundabílinn fyrir haustönn 2026 verður birt hér þriðjudaginn 18. ágúst nk. Gjald fyrir vorönn 2027 verður birt síðar. Greiðsluseðill fyrir haustönn verður sendur út í október 2026.
Starfstími
Frístundabíllinn ekur á starfstíma skólanna alla virka daga kl. 14:00 eða 14:15 (eftir leiðum)–16:30 á endastöð.
- Haustönn 2026: Frá 25. ágúst til 17. desember.
- Vorönn 2027: Frá 4. janúar til 9. júní (með hléi í páskafríinu).
Frístundabíllinn ekur í vetrarfríi skóla í febrúar og á starfsdögum skóla en ekki á rauðum dögum (sumardagurinn fyrsti, uppstigningardagur og annar í hvítasunnu).
Fyrirspurnir má senda á karijo@gardabaer.is.
Tímatafla
Börn eru hvött til að láta bílstjórann sjá sig á biðstöðvunum. Skjól undan veðri er í anddyrum íþróttahúsa og frístundaheimila.
Leið 1
Frá Hofsstaðaskóla og Flataskóla
Brottfarartími og staðir
Hofsstaðaskóli /Mýrin | Tónlistarskóli Garðabæjar / Klifið (stoppað eftir þörfum) | Flataskóli / Ásgarður | GKG (Stoppað eftir þörfum) | Miðgarður (áætlaður komutími) |
|---|---|---|---|---|
14:10 | 14:15 | 14:20 | - | 14:30 |
15:10 | 15:15 | 15:20 | - | 15:30 |
15:45 | 15:50 | 15:55 | 16:00 | 16:05 |
Leið 2
Frá Barnaskóla Hjallastefnunnar
Brottfarartími og staðir
Barnaskóli Hjallastefnunnar | Miðgarður | Tónlistarskóli Garðabæjar / Klifið (stoppað eftir þörfum) | Ásgarður (áætlaður komutími) |
|---|---|---|---|
14:00 | - | - | 14:10 |
14:15 | 14:20 | - | 14:30 |
15:00 | - | - | 15:10 |
15:15 | 15:20 | 15:25 | 15:30 |
15:45 | 15:50 | 15:55 | 16:00 |
Leið 3
Frá Urriðaholtsskóla
Brottfarartími og staðir
Urriðaholtsskóli | GKG (stoppað eftir þörfum) | Miðgarður | Tónlistarskóli Garðabæjar / Klifið (stoppað eftir þörfum) | Ásgarður (áætlaður komutími) |
|---|---|---|---|---|
14:10 | - | 14:20 | - | 14:30 |
15:10 | - | 15:20 | 15:25 | 15:30 |
15:50 | 16:00 | 16:05 | 16:10 | 16:20 |
Leið 4
Frá Álftanesskóla
*Bíllinn fer frá Miðgarði til baka á Álftanes á fimmtudögum kl. 15:55.
Álftanesskóli | Sjálandsskóli | Ásgarður | Tónlistarskóli Garðabæjar / Klifið (stoppað eftir þörfum) | Mýrin | Miðgarður |
|---|---|---|---|---|---|
14:05 | 14:15 | 14:20 | - | 14:30 | 14:35 |
14:45 | 14:55 | 15:00 | 15:05 | 15:10 | 15:25 |
15:25 | 15:35 | 15:40 | 15:45 | 15:50 | Fimmtud. |