Beint í efni

Íþrótt­ir inn­an frí­stundar fyr­ir 1.-2. bekk

Fréttir
24.08.2026
Íþróttamiðstöðin Mýrin

Í haust hefst tilraunaverkefni í samstarfi Garðabæjar og Stjörnunnar um að börn í 1.-2. bekk í grunnskólum sem eru í íþróttum hjá Stjörnunni fari á æfingar nálægt frístundaheimili innan þess tíma sem þau eru á frístundaheimilinu og þurfa þá ekki að taka frístundabílinn á æfingar.

Betri þjónusta og meira öryggi

Með því að bjóða upp á æfingar nálægt frístundaheimilunum fyrir yngstu börnin í grunnskólanum, 1. og 2. bekk, verður það öruggara og þægilegra fyrir börnin að þurfa ekki að taka frístundabílinn á æfingar annars staðar. Þar sem þetta er innan þess tíma sem börnin eru skráð á frístundaheimilið þá sjá starfsmenn frístundaheimilinna um að fylgja börnunum á æfingar og til baka eftir æfingar. Um leið verður þetta minni akstur og auðveldar daglegt skipulag innan frístundaheimilanna.

Samstarfið milli frístundaheimilanna og Stjörnunnar verður nánara og hóparnir verða smærri og gefa þá bæði starfsmönnum frístundaheimila sem og íþróttafélögunum betri yfirsýn.

Hvernig virkar þetta?

  • Börn í 1. og 2. bekk sem eru að sækja íþróttir á tíma frístundar eru skráð í dvöl á frístundaheimilunum amk þar til æfingum er lokið (eða allt til kl.16:30).
  • Einnig þarf að skrá sig í íþrótt hjá Stjörnunni og búið er að opna fyrir skráningar hjá Stjörnunni í gegnum Abler forritið. Við skráningu í Abler er hægt að sjá æfingargjöld.
  • Æfingatöflur innan starfstíma frístundaheimilanna taka mið af þeim nemendum sem eru í 1. og 2. bekk.
  • Nemendur í 3. og 4. bekk sem stunda æfingar geta nýtt sér akstur með frístundabílnum, sjá nánar hér um skráningu í frístundabílinn.
  • Upplýsingablað/kynningarbæklingur frá Stjörnunni um æfingar fyrir yngstu börnin má sjá hér:

Íþróttir innan frístundar - Stjarnan

  • Einnig er hægt að sjá upplýsingar um æfingatíma og gjöld fyrir æfingar á vef Stjörnunnar.
  • Íþróttir í boði hjá Stjörnunni fyrir yngstu hópana eru fótbolti, körfubolti, fimleikar og handbolti.
  • Markmiðið er að æfingar fari fram innan þess tíma sem börnin eru í frístundaheimilunum en undantekning er í fimleikum og fótbolta fyrir 7 ára (2. bekk) þar sem æfingar eru eftir frístundadvölinaa.
  • Hver íþrótt hjá Stjörnunni verður með eina æfingu um helgi.
  • Nemendum í frístund í Flataskóla- og Sjálandsskóla er fylgt til og frá æfingum í Ásgarði.
  • Nemendum í frístund í Hofsstaðaskóla er fylgt til og frá æfingum í Mýrinni.
  • Nemendum í frístund í Urriðaholtsskóla er fylgt til og frá æfingum í Urriðaholti.

Nemendur í Barnaskóla Hjallastefnunnar

  • Yngstu nemendurnir í Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum geta nýtt leið 2 í frístundabílnum sem fer fyrstu ferð kl. 14:00 og til baka frá Ásgarði kl. 15:20 með bílnum sem fer með næsta hóp.
  • Seinni hópur dagsins fer frá Hjalla kl. 15:00 og foreldrar þeirra sækja þau í Ásgarð.

Nemendur í Álftanesskóla

  • Börnin á Álftanesi sem stunda íþróttir með UMFÁ fá eins og áður einnig fá fylgd úr frístund yfir í íþróttahúsið á Álftanesi.
  • UMFÁ sendir þjálfara með í frístundabílinn þegar stóri hópurinn þeirra fer í Miðgarð á fimmtudögum.
  • Fimleikar eru ekki í boði á Álftanesi en þau sem skrá sig í fimleika hjá Stjörnunni verða að taka frístundabílinn yfir í Ásgarð ein síns liðs.