Miðgarður - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri

Miðgarður - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri
Miðgarður, Vetrarmýri
Sími: 550 2371
Forstöðumaður: Viðar Helgason
Netfang: vidarhe@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 08:00 til 22:00
Laugardaga: 09:00 til 18:00
Sunnudaga: 10:00 til 18:00
Aðstaða
Í Miðgarði er fótboltavöllur í fullri stærð og klifurveggur innanhúss auk teygju- og upphitunaraðstöðu. Þar er fyrsta flokks styrktar- og þrekæfingaaðstaða ásamt búningsklefum og klósettum. Stærð íþróttasalarins er 80x120 metrar og um 800 áhorfendur rúmast á svölum íþróttasalarins.
Í hliðarrýmum sunnan megin í byggingunni eru tvær hæðir, hvor um sig um 1500 m² að stærð, þar sem gert er ráð fyrir heilsutengdri starfsemi eins og sjúkraþjálfun, fundarrýmum og veitingasal. Með anddyri og öðrum stoðrýmum er flatarmál hússins um 18.200 m².
Öllum er frjálst að nýta göngubrautina á svölum íþróttasalarins á opnunartíma þegar ekki eru viðburðir með áhorfendum.
Opnunartími
Almennir opnunartímar | |
|---|---|
Virka daga | 08:00–22:00 |
Laugardaga | 9:00–18:00 |
Sunnudaga | 10:00–18:00 |
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.