Beint í efni
IS

Mat­jurta­garðar

Garðabær býður íbúum upp á að rækta matjurtir í skipulögðum görðum yfir sumartímann. Einnig eru skólagarðar í boði fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna.
Hlekkur í leigu á görðum opnar kl. 08:30 fimmtud 21. maí fyrir sumarið 2026.

Matjurtagarðar í Garðabæ

  • Opnað verður fyrir leigu kl. 08:30 fimmtudaginn 21. maí 2026. Þá verður hægt að nálgast hlekk hér beint á umsóknarvef fyrir matjurtakassana.

Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar matjurta á sumrin. Matjurtagarðar eru staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti.

Helstu upplýsingar

  • Leigutími er frá miðjum maí til 15. október (einstaka matjurtakassar eru til 15. september). Leigutakar fá póst þegar hægt verður að hefja ræktun í görðunum.
  • Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
  • Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
  • Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
  • Leiguverð sumarið 2026 - verður 5.500 kr fyrir leigu á matjurtakassa.
  • Opnað verður fyrir leigu kl. 08:30 fimmtudaginn 21. maí 2026. Þá verður hægt að nálgast hlekk hér beint á umsóknarvef fyrir matjurtakassana.

Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum.

Hvar eru matjurtagarðarnir?

Á kortavef Garðabæjar má sjá staðsetningar matjurtagarða með því að velja Þjónustu og afþreyingu í valmynd hægra megin og haka við Matjurtagarða.

Hæðahverfi

Í Hæðahverfi eru 41 matjurtakassi í boði. Aðkoma að svæðinu er sunnan leikskólans Hæðarbóls.

Álftanes

Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar við hlið gervigrasvallarins. Aðkoma er frá Breiðamýri.

Urriðaholt - Kauptún

Við Kauptún eru 10 matjurtakassar. Aðkoma er frá bílastæðinu í Kauptúni og göngustígur liggur að kössunum.

Urriðaholt - neðan Dýjagötu

Neðan Dýjagötu eru 47 matjurtakassar. Aðkoma er frá botnlanga Dýjagötu og Kinnargötu.

Skólagarðar í Silfurtúni

Börnum gefst tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna á lifandi og skemmtilegan hátt í Skólagörðunum í Silfurtúni. Garðarnir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6–13 ára og eru starfræktir yfir sumartímann.

Skólagarðarnir eru staðsettir í Silfurtúni, með aðkomu við leikskólann Bæjarból. Leiðbeinandi er á staðnum til að aðstoða börnin.

Helstu upplýsingar

  • Skólagarðar eru opnir á virkum dögum kl. 8:00–16:00.
  • Garðarnir eru ekki daggæsla.
  • Skráning fer fram á staðnum frá 2. júní.
  • Greitt er efnisgjald að upphæð 5.500 kr.
  • Eldra fólki býðst að leigja garð í skólagörðunum eftir 6. júní.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Garðyrkjudeild Garðabæjar í tölvupósti á smarig@gardabaer.is