Klakinn

Opnunartími
- 8.-10. bekkur: Mánudaga og miðvikudaga frá kl 19:30–22:00.
- 7. bekkur: 17:00–19:00 einu sinni í viku
- 5. og 6. bekkur: á 2 vikna fresti
Það er frjálst að koma og fara hvenær sem er á opnunartímanum. Nánari opnunartími fyrir miðstig er auglýstur á svæðinu þeirra og í tölvupósti til foreldra.
Staðsetning Klakans
Klakinn er með aðstöðu inni á unglingasvæði skólans og skrifstofa forstöðumanns er inni á unglingadeildarsvæði.
Stundum flyst dagskrá úr húsi vegna ferða eða Samfésviðburða eða í annarri samvinnu við félagsmiðstöðvar og skóla. Húsinu er þá lokað á meðan.
Starf Klakans
Dagskrá Klakans hefst í september með opnunarhátíð. Skipulag dagskrár er í höndum nemenda í félagsmálavali og starfsfólks Klakans. Kvöldstarfið er ætlað nemendum í 8. til 10. bekk.
Opið hús
Á opnum húsum er opið í tæki og tól Klakans. Á flestum kvöldum er boðið upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.
Stærri viðburðir
Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna: skíðaferð, gistinótt, árshátíð, böll, vorferðir og þátttaka í Samfés viðburðum eins og Landsmóti, söngkeppni, danskeppni, Stíl og Samfestingi.
Klúbbar
Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. í klúbbunum er unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum.
Hópastarf
Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.
Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.
Upplýsingar um dagskrá
Allar upplýsingar eru birtar á Instagramsíðunni okkar: klakinnfelo. Tölvupóstur er sendur varðandi stærri viðburði og dagskrá miðstigs. Ef einhverjar spurningar vakna eða ef þið viljið koma með ábendingar ekki hika við að hafa samband í síma 846 4534.
Starfsfólk Klakans
Tómas Þór Jacobsen, forstöðumaður,
Agnes Ásmundsdóttir
Alexander Alexandersson
Íris Ólafsdóttir
Lea Björk Auðunsdóttir
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.