Garðahraun
Garðahraun er sérhæft frístundaúrræði sem rekið er á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Garðahraun er ætlað börnum sem falla undir málaflokk fatlaðs fólks og hafa fötlun sem leiðir til verulegrar og langvarandi stuðningsþarfar.

Garðahraun
Hátíðarsalur við UMFÁ, Breiðumýri 225 Álftanes
Sími: 820 8594
Forstöðumaður: Ágúst Arnar Þráinsson
Deildarstjóri: Adam Árni Andersen
Starfsemi
Í Garðahrauni er boðið upp á fjölbreytt og skapandi tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur til klukkan 16:30. Barnið getur komið einu sinni í viku eða eins oft og óskað er eftir. Boðið er upp á síðdegishressingu.
Markmið Garðahrauns er að veita börnum öruggt athvarf og bjóða upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins.
Lögð er áhersla á:
- virðingu fyrir einstaklingnum
- fagleg vinnubrögð
- jákvæð samskipti
- gott samstarf við foreldra
Upplýsingar um Garðahraun
Þú getur fengið nánari kynningu á starfseminni með því að hafa samband við:
- Forstöðumann Garðahrauns: Ágúst Arnar Þráinsson í síma 820 8594 eða með tölvupósti á agustthr@gardabaer.is.
Sækja um í Garðahrauni
Sótt er um í Garðahraun á Þjónustugátt Garðabæjar. Þegar umsókn ásamt fylgigögnum hefur verið móttekin er farið yfir umsóknina af inntökuteymi Garðahrauns. Þegar umsókn er samþykkt þarf að skrá barnið á frístundavef Völu.
Skilyrði fyrir samþykkt umsóknar í Garðahraun er að fyrir liggi annað hvort:
· Fullnaðargreining á fötlun frá viðurkenndum greiningaraðila.
· Frumgreining eða faglegt mat frá viðurkenndum aðila sem bendir með skýrum hætti til fötlunar eða verulegrar og langvarandi stuðningsþarfar barns.
Við mat á umsókn er horft til eftirfarandi þátta:
· Frumgreiningar eða fullnaðargreiningar frá viðurkenndum greiningaraðila þegar hún liggur fyrir.
· Faglegs mats skólaþjónustu, heilbrigðisþjónustu eða annarra viðeigandi fagaðila.
· SIS-mats eða annars mats á stuðningsþörfum þegar það liggur fyrir.
· Náms- og félagslegrar stöðu barnsins, félagslegrar þátttöku og líðanar.
Heimilt er að samþykkja umsókn á grundvelli frumgreiningar eða sambærilegra faglegra gagna meðan beðið er eftir fullnaðargreiningu, enda sýni fyrirliggjandi gögn fram á að barn sé líklegt til að falla innan markhóps þjónustunnar.
Ábyrgð á mati umsókna og ákvörðun um inntöku er hjá velferðarsviði Garðabæjar, sem metur hvort barn falli innan markhóps laga nr. 38/2018 og uppfylli skilyrði þjónustunnar.
Gjaldskrá
Frístundaheimili – Tími (klst./mán.) | Gjald (kr.) |
|---|---|
1–10 | 4.900 |
11–20 | 9.800 |
21–30 | 14.700 |
31–40 | 19.600 |
41–50 | 24.500 |
51–60 | 29.400 |
61–70 | 34.300 |
71–80 | 39.200 |
Garðahraun – Tími (klst./mán.) | Gjald (kr.) |
|---|---|
1–10 | 4.900 |
11–20 | 9.800 |
21–30 | 14.700 |
31–40 | 19.600 |
41–50 | 24.500 |
51–60 | 29.400 |
61–70 | 34.300 |
71–80 | 39.200 |
Liður | Gjald (kr.) | Eining |
|---|---|---|
Síðdegishressing | 250 | pr. skipti |
Opnunardagar utan skólatíma – heill dagur | 3.920 | pr. dag |
Hádegishressing á opnunardögum | 620 | pr. skipti |
Sumarstarf frístundaheimila (7 dagar í ágúst) | 16.640 | heild |
Sumarstarf Garðahrauns (5.–10. bekk) | 12.482 | pr. viku |
Frístundabíll – vorönn 2026 | 13.400 | heild |
Forsendur og skýringar
• Systkinaafsláttur: 50% af grunngjaldi fyrir barn umfram eitt og 75% fyrir barn umfram tvö.
• Tekjutengdur afsláttur: 40% af almennu dvalargjaldi (sótt í þjónustugátt).
• Frístundabíll: skráning í gegnum Völu vetrarfrístund; gjald gildir fyrir vorönn 2026 og endurskoðast fyrir haustönn 2026.