Beint í efni

Sum­ar­hraun

Sumarhraun er þjónusta sem er í boði á sumrin fyrir börn með sérþarfir í 1. til 7. bekk í Garðabæ til að auðvelda þeim að taka þátt í sumarnámskeiðum.

Stuðningur á sumarnámskeið

Börn fá stuðning á sumarnámskeiðum frá stuðningsfulltrúa sem styður við þau eins og þörf er á.

Markmiðið er að:

  • gefa öllum börnum tækifæri til þess að taka þátt í sumarnámskeiðum með þeim stuðningi sem hver og einn þarfnast
  • veita börnunum öryggi, efla sjálfstæði og félagsfærni

Sértæk sumarnámskeið

Sértæk sumarnámskeið eru fyrir börn sem eiga erfitt með að fara á hefðbundin sumarnámskeið og þurfa sérhæfðara fyrirkomulag eða fyrir þau sem vilja rólegri viku. Námskeiðin eru haldin í Breiðumýri á Álftanesi.

Sækja um í Sumarhrauni

Þú sækir um stuðning á sumarnámskeið og Sumarhraun í Þjónustugátt Garðabæjar fyrir auglýstan umsóknarfrest (athugið að umsókn um Sumarhraun birtist aðeins á vorin).

Þegar upplýsingar um þau námskeið sem barnið mun fara á liggja fyrir þarf að senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið agustthr@gardabaer.is eða adaman@gardabaer.is.

  • Heiti námskeiðs.
  • Tímasetning.
  • Staðsetning.

Lengd á stuðningi

Hægt er að sækja um 7 vikur á sumrin fyrir heilsdagsnámskeið. Tímalengdin gildir samanlagt fyrir stuðning á almennum sumarnámskeiðum og á sértækum námskeiðum Sumarhrauns.

Boðið er upp á viðveru í Sumarhrauni ef námskeiðið er bara hálfan daginn.

Sumarhraun - Garðabær