Ungmennahraun
Ungmennahraun er sértæk frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára með miklar stuðningsþarfir.

Ungmennahraun
Hátíðarsalur við UMFÁ, Breiðumýri 225 Álftanes
Sími: 820 8594
Forstöðumaður: Ágúst Arnar Þráinsson
Deildarstjóri: Adam Árni Andersen
Opnunartími
Opið eftir að skóladegi lýkur til klukkan 16:30.
Starfsemi
Ungmennahraun er sértæk frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára með miklar stuðningsþarfir. Markmið frístundarinnar er að veita ungmennunum öruggt og skapandi umhverfi til að efla félagsfærni og sjálfstæði. Starfsemin fer fram að loknum skóladegi ungmenna.
Opnunartími
- Opið er í Ungmennahrauni virka daga frá kl. 13:00 til 16:30.
- Opið er í vetrarfríum, jóla- og páskafríum og á starfsdögum framhaldsskóla frá kl. 08:30 til 16:30.
- Lokað er á rauðum dögum.
Sækja um í Ungmennahrauni
Sótt er um í Ungmennahrauni í Þjónustugátt Garðabæjar. Þegar umsókn ásamt fylgigögnum hefur verið móttekin er farið yfir umsóknina af inntökuteymi Ungmennahrauns. Þegar umsókn er samþykkt þarf að skrá barnið á frístundavef Völu.
Mat á umsókn
Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi þátta:
- Greiningu á fötlun ungmennis frá viðurkenndum greiningaraðilum.
- Mat á stuðningsþörf (SIS) frá Ráðgjafar- og greiningarstöð.
- Náms- og félagslegri stöðu ungmennis, félagslegri þátttöku og líðan.
- Óskir ungmennis eða forsjáraðila.
- Mat á einstaklingsbundinni þjónustuþörf
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.