Kortavefur
Kortavefur Garðabæjar er tólið þitt til að skoða og skilja Garðabæ. Þú getur auðveldlega leitað að teikningum, lóðarmörkum og fróðleik um nærumhverfið.
Hvað er hægt að sjá á kortavefnum?
Á kortavefnum má meðal annars sjá:
- bekki og göngustíga
- rafhleðslustöðvar
- staðsetningu lagna
- forgangsröðun snjómoksturs
- fornminjar
- teikningar af öllum húsum í Garðabæ
- framkvæmdaáætlun bæjarins fyrir hvert ár
- skipulagsmál sem eru í vinnslu
Kortavefurinn geymir mun meira en þetta. Kíktu á kortið og sjáðu hvað annað áhugavert leynist í bæjarlandinu!
Hvernig á að nota kortavefinn?
Í valmyndinni hægra megin getur þú opnað flokkana sem þú vilt skoða og hakað við þær upplýsingar sem þú vilt sjá á kortinu.
Fyrir ofan valmyndina eru fleiri möguleikar, eins og:
- Nota mælistiku til að mæla vegalengdir á kortinu.
- Fara í tímaflakk og skoða loftmyndir af bænum aftur til ársins 1966 og bera saman við önnur ár.

Finna teikningar af húsum
- Stækkaðu kortið þar til húseignin sést vel. Þú getur tvísmellt á kortið eða ýtt nokkrum sinnum á plús-takkann neðst til hægri.
- Hakaðu í Teikningar af byggingum neðst í valmyndinni.
- Veldu viðkomandi hús.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.